Vísinda- og tækniráð

Vísinda- og tækniráð

Vísinda- og tækniráð hefur það hlutverk að efla vísindarannsóknir, vísindamenntun og tækni­­þróun í landinu í því skyni að treysta stoðir íslenskrar menningar og auka sam­keppnis­hæfni atvinnulífsins. Ráðið markar stefnu stjórn­valda í vísinda- og tæknimálum til þriggja ára í senn. Umfjöllun þess á hvoru sviði um sig skal undirbúin af starfsnefndum ráðsins, vísindanefnd og tækninefnd.

Forsætisráðherra er formaður Vísinda- og tækniráðs. Hann ásamt fjármálaráðherra, iðnaðarráðherra og menntamálaráðherra eiga föst sæti í ráðinu. Forsætisráðherra skipar tvo menn í ráðið. Aðrir fulltrúar í Vísinda- og tækniráði eru tilnefndir af:

  • samstarfsnefnd háskólastigsins (4)
  • Alþýðusambandi Íslands (2)
  • Samtökum atvinnulífsins (2)
  • menntamálaráðherra (1)
  • iðnaðarráðherra (1)
  • sjávarútvegs- landbúnaðarráðherra (1)
  • heilbrigðisráðherra (1)
  • umhverfisráðherra (1)

Ráðið starfar eftir lögum um Vísinda- og tækniráð.

Allar frekari upplýsingar um Vísinda- og tækniráð er að finna á vef þess, vt.is, svo sem:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica