Hoppa yfir valmynd
28. maí 2021 Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

90 milljónum úthlutað úr Barnamenningarsjóði Íslands

Fiðlusveit úr Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar flytur tónlistaratriði. - mynd

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, tilkynntu í Hörpu í dag um úthlutun úr Barnamenningarsjóði Íslands. Alls fengu 37 verkefni styrk og nemur heildarfjárhæð styrkjanna 90 milljónum króna en alls bárust 113 umsóknir.

Er þetta í þriðja sinn sem úthlutað er úr sjóðnum sem var stofnaður í tilefni aldarafmælis fullveldis Íslands. Hlutverk sjóðsins er að fjármagna og styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi.

Þriggja manna fagráð fjallaði um umsóknir í sjóðinn og gerði tillögu um úthlutun. Í rökstuðningi fagráðsins segir að umsóknirnar hafi borið vitni um ástríðu og hugmyndaauðgi þeirra sem sinna skapandi störfum með börnum og í þágu barna.

Yfirlit yfir styrkþega má sjá á vef Rannís.

 

 

 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum