Hoppa yfir valmynd
28. september 2001 Forsætisráðuneytið

Skráningu hlutabréfa Landssíma Íslands hf.

Reykjavík,
28. september 2001

Fréttatilkynning

Ákveðið hefur verið að leita eftir skráningu hlutabréfa Landssíma Íslands hf. á Tilboðsmarkað Verðbréfaþings Íslands hf. Gengið hefur verið frá samningi við Búnaðarbanka Íslands hf. um viðskiptavakt með hlutabréfin. Ríkissjóður mun bjóða til sölu hlutabréf í Landssímanum á markaðsgengi hverju sinni en þó aldrei á lægra gengi en 6,1. Sölutilboð af hálfu ríkissjóðs verða að hámarki 300.000 kr. að nafnvirði sem er sami hlutur og var boðinn til sölu í almennu áskriftarsölunni.

Framkvæmdanefnd um einkavæðingu

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum