Hoppa yfir valmynd
20. nóvember 2003 Forsætisráðuneytið

Framkvæmdastjóri Minningarsafns um Halldór Laxness

Forsætisráðuneytið hefur ráðið Guðnýju Dóru Gestsdóttur í starf framkvæmdastjóra Minningarsafns um Halldór Laxness að Gljúfrasteini frá og með 1. janúar 2004.

Guðný Dóra er ferðamálafræðingur að mennt og hefur á undanförnum árum starfað að ýmsum ferða- og kynningarmálum. Sem atvinnu- og ferðamálafulltrúi Mosfellsbæjar stýrði hún undirbúningi og framkvæmd Laxnesshátíðar árið 2002. Þá annaðist hún skipulagningu Norrænnar ráðstefnu forstöðumanna rithöfunda- og tónskáldasafna sem haldin var hér á landi í október 2003.

                                                                                              Reykjavík  20. nóvember 2003.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum