Hoppa yfir valmynd
28. nóvember 2003 Forsætisráðuneytið

Kristnihátíðarsjóður 2003

Merki Kristnihátíðarsjóðs
Merki Kristnihátíðarsjóðs

Úthlutun styrkja úr Kristnihátíðarsjóði fer fram við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu mánudaginn 1. desember nk. og hefst kl. 11:30. Samtals verður úthlutað styrkjum að fjárhæð 94 m.kr. til 66 verkefna sem tengjast menningar- og trúararfi þjóðarinnar og fornleifarannsóknum.

Kristnihátíðarsjóður, sem starfar skv. lögum nr. 12/2001, var stofnaður til að minnast þess að 1000 ár eru liðin frá því kristinn siður var lögtekinn á Íslandi. Hlutverk sjóðsins er tvíþætt:

- að efla fræðslu og rannsóknir á menningar- og trúararfi þjóðarinnar og stuðla að umræðum um lífsgildi hennar, siðferði og framtíðarsýn;

- að kosta fornleifarannsóknir á helstu sögustöðum þjóðarinnar, m.a. á Þingvöllum, í Skálholti og á Hólum.

Starfstími sjóðsins er fimm ár eða til ársloka 2005. Ríkissjóður leggur sjóðnum til 100 m.kr. fyrir hvert starfsár samkvæmt sérstökum lið á fjárlögum. Stjórn sjóðsins, kjörin af Alþingi, skipa Anna Soffía Hauksdóttir, sem jafnframt er formaður, Anna Agnarsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson, rektor. Varamenn stjórnar eru Þorsteinn Gunnarsson, Jón Páll Halldórsson og Þóra Guðmundsdóttir.

Stjórnin hefur skipað tvær verkefnisstjórnir sem gera tillögur til stjórnar um verkefni og framlög til þeirra fyrir hvert starfsár, auk þess að vera stjórninni til ráðgjafar. Í verkefnisstjórn á sviði menningar- og trúararfs, sem hefur aðsetur á Akureyri, sitja Guðmundur Heiðar Frímannsson, formaður, Guðmundur K. Magnússon og Lára G. Oddsdóttir. Verkefnisstjórn á sviði fornleifafræði, með aðsetur í Reykjavík, skipa Guðmundur Hálfdánarson, formaður, Árný E. Sveinbjörnsdóttir og Hjalti Hugason.

                                                                                                 Í Reykjavík 28. nóvember 2003.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum