Hoppa yfir valmynd
15. febrúar 2002 Forsætisráðuneytið

Frá framkvæmdanefnd um einkavæðingu

Reykjavík
15. febrúar 2002


Orðsending frá framkvæmdanefnd um einkavæðingu til Verðbréfaþings Íslands

Undanfarna daga hefur nokkuð verið rætt opinberlega um framgang viðræðna við þá sem sýnt hafa áhuga á að gerast kjölfestufjárfestar í Landssíma Íslands hf. Það skal áréttað að viðræðum hefur ekki verið slitið eins og fram kom í tilkynningu framkvæmdanefndar um einkavæðingu til Verðbréfaþings Íslands 5. þ.m. Líkur á jákvæðri niðurstöðu viðræðna hafa þó minnkað upp á síðkastið. Niðurstöðu um hvort framhald verði á söluferli til kjölfestufjárfestis má vænta innan tveggja vikna.



Framkvæmdanefnd um einkavæðingu

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum