Hoppa yfir valmynd
2. mars 2002 Forsætisráðuneytið

Ráðherraskipti - Ríkisráðsfundur

Frétt nr.: 7/2002

Ráðherraskipti - Ríkisráðsfundur

Frá ríkisráðsritara

Á fundi ríkisráðs á Bessastöðum í dag veitti forseti Íslands Birni Bjarnasyni lausn frá embætti menntamálaráðherra og skipaði Tómas Inga Olrich alþingismann til að vera ráðherra í ríkisstjórn Íslands.

Þá staðfesti forseti Íslands svohljóðandi úrskurð um breytingu á úrskurði um skiptingu starfa ráðherra:

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra er hér með gerð sú breyting á forsetaúrskurði nr. 72 frá 28. maí 1999, um skiptingu starfa ráðherra, að Tómas Ingi Olrich fer með ráðherrastörf þau sem Birni Bjarnasyni voru falin í nefndum forsetaúrskurði og fer hann með menntamálaráðuneytið.

Ríkisráðsritari, 2. mars 2002

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum