Hoppa yfir valmynd
19. febrúar 2004 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra í opinbera heimsókn til Úkraínu

Davíð Oddsson, forsætisráðherra, verður í opinberri heimsókn í Úkraínu 23.-24. febrúar næstkomandi í boði Viktors Yanukovych, forsætisráðherra. Í heimsókninni mun forsætisráðherra eiga fundi með forseta, forsætisráðherra og utanríkisráðherra Úkraínu. Í för með forsætisráðherra verður íslensk viðskiptasendinefnd og mun hann ávarpa viðskiptaráðstefnu íslenskra og úkraínskra fyrirtækja sem Útflutningsráð hefur undirbúið og haldin verður í Kiev 23. febrúar.

Í Reykjavík, 19. febrúar 2004.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum