Hoppa yfir valmynd
11. mars 2004 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið 2004-2007

Forsíða bæklings
Forsíða bæklings um stefnu ríkisstjórnar um upplýsingasamfélagið.

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra kynnti nýja stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið á fundi á Grand hóteli í dag, 11. mars.

Einstaklingurinn, tækifæri hans og velferð í samfélaginu eru leiðarljós hinnar nýju stefnu en í henni segir m.a. að upplýsingatækni veiti einstaklingum, atvinnulífi og opinberri þjónustu tækifæri til að nýta sér þær auðlindir sem felast í upplýsingum, þekkingu og nýsköpun. Því ber stefnan yfirskriftina:

Auðlindir í allra þágu – Stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið 2004-2007

Stefnan byggir á eftirfarandi framtíðarsýn: Einstaklingar búi við fjölbreytt tækifæri í lýðræðissamfélagi sem er í fararbroddi í nýtingu upplýsinga og þekkingar. Svigrúm verði fyrir alla til að þroskast, öðlast aukin lífsgæði og axla ábyrgð. Til að ná þessum markmiðum verður að nýta þau sóknarfæri sem felast í styrkleika og sérkennum lands og þjóðar. Örugg og öflug upplýsingatækni er verkfæri til þess.

Meginmarkmið stefnunnar eru:

  • Tækifæri. Aukin verði tækifæri einstaklinga og fyrirtækja til að miðla og sækja þekkingu, eiga samskipti og stunda viðskipti hvar sem er og hvenær sem er.
  • Ábyrgð. Forystumenn á öllum sviðum samfélagsins axli ábyrgð og vinni saman að því að upplýsingatæknin sé nýtt í þágu borgaranna og ólíkir einstaklingar geti fært sér hana í nyt.
  • Öryggi. Tryggður verði aðgangur fólks og fyrirtækja að traustu háhraðaneti á samkeppnishæfu verði. Öryggi upplýsinga og friðhelgi einkalífs verði höfð að leiðarljósi í þróun upplýsingasamfélagsins.
  • Lífsgæði. Stuðlað verði að auknum lífsgæðum og auðugra mannlífi með því að nýta möguleika upplýsingatækninnar í menntun, menningu, heilbrigðismálum og á öðrum sviðum samfélagsins.

Stefnan nær til áranna 2004-2007 og er verkefnum settur tímarammi og ábyrgð á einstökum verkefnum deilt niður á ráðuneyti eftir því sem hægt er. Áhersla er lögð á verkefni á sviði rafrænnar stjórnsýslu.

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að skipa 6 manna verkefnisstjórn sem verður forsætisráðuneytinu innan handar um að tryggja framkvæmd stefnunnar. Hún verður skipuð fulltrúum forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, samgönguráðuneytis, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis, menntamálaráðuneytis og iðnaðar- og viðskiptaráðuneyta. Einnig verður starfandi samráðsnefnd ráðuneyta í málefnum upplýsingasamfélagsins sem skipuð verður fulltrúum allra ráðuneyta og haft verður samráð við hagsmunaaðila í samfélaginu um framkvæmd stefnunnar.

Forsætisráðuneyti skipaði fimm manna stefnumótunarnefnd sl. sumar til að gera tillögu að nýrri stefnu um notkun upplýsingatækni í íslensku samfélagi. Í nefndinni sátu: Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri, Sigfús Ingi Sigfússon, markaðsstjóri, Svava Garðarsdóttir, kerfisfræðingur, Þór Sigfússon, framkvæmdastjóri og Guðbjörg Sigurðardóttir, verkefnisstjóri sem jafnframt var formaður nefndarinnar.

Með nefndinni vann samráðshópur með fulltrúum ýmissa hagsmunaaðila í samfélaginu og Samráðsnefnd í málefnum upplýsingasamfélagsins sem skipuð er fulltrúum allra ráðuneyta. Stefnumótunarnefndin leitaði einnig eftir sjónarmiðum fjölmargra annarra aðila.

 

                                                                                            Í Reykjavík, 11. mars 2004.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum