Hoppa yfir valmynd
19. apríl 2002 Forsætisráðuneytið

Skipan stjórnar Þjóðhátíðarsjóðs

Frétt nr.: 14/2002

Skipun formanns stjórnar Þjóðhátíðarsjóðs

Ríkisstjórnin hefur að tillögu forsætisráðherra tilnefnt Sigríði Rögnu Sigurðardóttur kennara í stjórn Þjóðhátíðarsjóðs og er hún jafnframt skipuð formaður sjóðsstjórnar. Ásamt henni eiga sæti í stjórn sjóðsins Birgir Ísleifur Gunnarsson bankastjóri, tilnefndur af Seðlabanka Íslands, og Jónína Michaelsdóttir rithöfundur, Rannveig Edda Hálfdánardóttir ritari og Björn Teitsson fv. skólameistari kjörin af Alþingi.

Varamenn þeirra eru Guðmundur Árnason skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti, tilnefndur af ríkisstjórn, Eiríkur Guðnason bankastjóri tilnefndur af Seðlabanka Íslands, og Halldóra Rafnar blaðamaður, Margrét K. Sverrisdóttir framkvæmdastjóri og Vigdís Hauksdóttir garðyrkjufræðingur kjörin af Alþingi.

Þjóðhátíðarsjóður er starfræktur samkvæmt staðfestri skipulagsskrá nr. 361 frá 30. september 1977, sbr. auglýsingu nr. 273/2000, um breytingu á henni, í þeim tilgangi að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf. Stofnfé sjóðsins var ágóði af útgáfu Seðlabanka Íslands á þjóðhátíðarmynt í tilefni af 1100 ára búsetu á Íslandi árið 1974.

Í Reykjavík, 19. apríl 2002

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum