Hoppa yfir valmynd
12. júní 2002 Forsætisráðuneytið

Málefni Falun Gong

Málefni Falun Gong

Samráðsnefnd þriggja ráðuneyta - forsætisráðuneytis, utanríkisráðuneytis og dóms- og kirkjumálaráðuneytis - hefur í kvöld þingað um málefni meðlima Falun Gong hreyfingarinnar sem nú dveljast á Keflavíkurflugvelli og í nágrenni hans. Jafnframt hafa starfsmenn lögreglustjóraembættisins í Reykjavík átt fundi með talsmönnum Falun Gong sem staddir eru í Reykjavík og gefið nefndinni skýrslu um niðurstöðu þeirra.

Í ljósi viðræðna hefur verið samþykkt að lögregluyfirvöld taki við yfirlýsingu framangreindra talsmanna Falun Gong félaga þar sem þeir heita því að fara í hvívetna að fyrirmælum lögreglu á meðan á heimsókn forseta Kína hingað til lands stendur, virða öryggissvæði og koma saman á sérstökum svæðum samþykktum af lögreglu.

Jafnframt hefur verið ákveðið að veita landgöngu öllum þeim Falun Gong meðlimum sem dvalið hafa í dag í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Njarðvíkurskóla að því tilskildu að þeir undirriti samsvarandi yfirlýsingu og að framan greinir.

Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að takmarka sem kostur er komu fleiri meðlima Falun Gong á næstu dögum.


11. júní 2002

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum