Hoppa yfir valmynd
7. september 2002 Forsætisráðuneytið

Fundur með Silvio Berlusconi

Frétt nr. 30/2002

Fundur með Silvio Berlusconi á Ítalí

Davíð Oddsson, forsætisráðherra átti í gær fund með Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu í Róm áður en hann hélt til Sardiníu þar sem hann dvelur í einkaheimsókn hjá ítalska forsætisráðherranum, en með því er endurgoldin heimsókn Berlusconi til Íslands síðastliðið vor.

Á mánudag heldur forsætisráðherra til Rómar á ný og flytur á þriðjudag erindi á hádegisverðarfundi Íslensk-ítalska verslunarráðsins. Við það tækifæri verður einnig undirritaður tvísköttunarsamningur á milli Íslands og Ítalíu.

Reykjavík, 7 september 2002.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum