Hoppa yfir valmynd
29. nóvember 2004 Forsætisráðuneytið

Úthlutun styrkja úr Kristnihátíðarsjóði 2004

Úthlutun styrkja úr Kristnihátíðarsjóði fer fram við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu miðvikudaginn 1. desember nk. og hefst kl. 12:00. Samtals verður úthlutað styrkjum að fjárhæð 93 m.kr. til 59 verkefna sem tengjast menningar- og trúararfi þjóðarinnar og fornleifarannsóknum.

Kristnihátíðarsjóður, sem starfar skv. lögum nr. 12/2001, var  stofnaður til að minnast þess að 1000 ár eru liðin frá því kristinn siður var lögtekinn á Íslandi. Hlutverk sjóðsins er tvíþætt:

  •  að efla fræðslu og rannsóknir á menningar- og trúararfi þjóðarinnar og stuðla að umræðum um lífsgildi hennar, siðferði og framtíðarsýn;
  •  að kosta fornleifarannsóknir á helstu sögustöðum þjóðarinnar, m.a. á Þingvöllum, í Skálholti og á Hólum.

Starfstími sjóðsins er fimm ár eða til ársloka 2005. Ríkissjóður leggur sjóðnum til 100 m.kr. fyrir hvert starfsár samkvæmt sérstökum lið á fjárlögum. Stjórn sjóðsins, kjörin af Alþingi, skipa Anna Soffía Hauksdóttir, sem jafnframt er formaður, Anna Agnarsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson, rektor. Varamenn stjórnar eru Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt, Jón Páll Halldórsson og Þóra Guðmundsdóttir.

Stjórnin hefur skipað tvær verkefnisstjórnir sem gera tillögur til stjórnar um verkefni og framlög til þeirra fyrir hvert starfsár, auk þess að vera stjórninni til ráðgjafar. Í verkefnisstjórn á sviði menningar- og trúararfs, sem hefur aðsetur á Akureyri, sitja Guðmundur Heiðar Frímannsson, formaður, Guðmundur K. Magnússon og Lára G. Oddsdóttir. Verkefnisstjórn á sviði fornleifafræði, með aðsetur í Reykjavík, skipa Guðmundur Hálfdanarson, formaður, Árný E. Sveinbjörnsdóttir og Hjalti Hugason.

Í Reykjavík 29. nóvember 2004.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum