Hoppa yfir valmynd
15. desember 2004 Forsætisráðuneytið

Þjóðin eignast aldarspegil Sigmúnds Jóhanssonar

Þjóðin eignast aldarspegil Sigmúnds Jóhanssonar
Þjóðin eignast aldarspegil Sigmúnds Jóhanssonar

Samningar voru í dag undirritaðir um kaup ríkisins á öllum teikningum Sigmúnds Jóhanssonar sem birst hafa í Morgunblaðinu um áratuga skeið, auk teikninga hans sem birst hafa í öðrum miðlum.  Er um að ræða u.þ.b. 10.000 myndir. Þetta var samþykkt í ríkisstjórn Íslands nýverið, að tillögu forsætisráðherra, í tilefni 60 ára afmælis lýðveldisins Íslands og jafnframt í tengslum við 100 ára afmæli heimastjórnar.

Teikningar Sigmúnds eru á sinn hátt aldarspegill þjóðarinnar og má með þeim skoða sögu íslenskra stjórnmála, atvinnulífs og menningar.  Í ár eru einmitt 40 ár frá því að Morgunblaðið hóf að birta teikningar Sigmúnds og ljóst að heimildargildi teikninganna er mikið, bæði fyrir fræðimenn og ekki síður almenning.

Samningar um kaupin voru undirritaðir í dag í Vestmannaeyjum af Halldóri Ásgrímssyni, forsætisráðherra og Sigmúnd Jóhanssyni að viðstöddum nokkrum af þingmönnum kjördæmisins.  Með kaupunum eignast ríkið allar frummyndir teikninganna og verður jafnframt eigandi að öllum réttindum myndefnisins. Kaupverðið er 18 milljónir króna. Stefnt er að því að framangreint myndasafn verði afhent væntanlegu menningarhúsi í Vestmannaeyjum til varðveislu og sýningar fyrir almenning. Jafnframt er stefnt að því að koma teikningunum yfir á tölvutækt form aðgengilegar almenningi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum