Hoppa yfir valmynd
3. janúar 2006 Forsætisráðuneytið

Frá Þjóðhátíðarsjóði

Þjóðhátíðarsjóður

auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 2006

Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins nr. 361 30. september1977, sbr. auglýsingar um staðfestingu á breytingu á skipulagsskrá fyrir Þjóðhátíðarsjóð, nr. 673 frá 12. september 2000 og nr. 987 frá 19. október 2005, er tilgangur sjóðsins „að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf.“

Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlög til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau.

Stefnt er að úthlutun á fyrri hluta komandi árs.  Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2006. Eldri umsóknir ber að endurnýja.

Nálgast má umsóknareyðublöð á veffanginu  www.sedlabanki.is.

Nánari upplýsingar gefur ritari sjóðsstjórnar,
Sigfús Gauti Þórðarson, í síma 569 9600.

Reykjavík, 30. desember 2005.
ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐUR




Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum