Hoppa yfir valmynd
25. febrúar 2005 Forsætisráðuneytið

Stjórnarskrárnefnd opnar heimasíðu

Nýskipuð stjórnarskrárnefnd hefur nú haldið tvo fundi og rætt meðal annars drög að vinnuáætlun. Næsti fundur verður haldinn mánudaginn 14. mars 2005. Opnuð hefur verið heimasíða nefndarinnar (www.stjornarskra.is ) þar sem birtar verða fundargerðir og ýmislegt efni sem tengist stjórnarskránni og endurskoðun hennar.

Reykjavík 25. febrúar 2005



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum