Hoppa yfir valmynd
22. júlí 2005 Forsætisráðuneytið

Sala á eignum og yfirtaka skulda Lánasjóðs landbúnaðarins

Með lögum nr. 68/2005 var landbúnaðarráðherra heimilað að selja allar eignir og semja um yfirtöku skulda Lánasjóðs landbúnaðarins. Landbúnaðarráðherra hefur falið framkvæmdanefnd um einkavæðingu að undirbúa sölu á útlánasafni sjóðsins og yfirtöku helstu skulda hans.

Salan er háð eftirfarandi skilyrðum:

  1. Tilboðsgjafi skal yfirtaka skuldbindingar Lánasjóðsins sem eru í langflestum tilfellum með ríkisábyrgð.
  2. Tilboðsgjafi skal hafa trausta fjárhagsstöðu og alþjóðlegt lánshæfismat.
  3. Tilboðsgjafi skal vera fjármálafyrirtæki í skilningi 4. gr., 1.-3. tl. laga nr. 161/2002.
  4. Tilboðsgjafi skal fallast á það skilyrði að standa við lánsloforð sem stjórn Lánasjóðsins hefur þegar veitt að uppfylltum skilyrðum.
  5. Tilboðsgjafi skal lýsa því yfir með því að leggja inn tilboð um kaup á umræddum skuldabréfum, að hann muni ekki hækka vexti né breyta kjörum skuldabréfanna til hins verra fyrir skuldara, umfram það sem stjórn Lánasjóðs landbúnaðarins hefur samþykkt við yfirtöku lána.
  6. Tilboðsgjafi skal lýsa því yfir að ákvæði skuldabréfanna um uppgreiðsluheimild skuldara haldist
  7. Tilboðsgjafi skal lýsa því yfir að hann muni kappkosta að veita landbúnaðinum öllum fjármálaþjónustu á viðskiptalegum grundvelli.
  8. Tilboðsgjafi skal lýsa því yfir að hann mun leggja sig fram um að starfsfólk Lánasjóðsins haldi störfum sínum eða fái sambærileg störf hjá tilboðsgjafa.

Forval til útboðs um kaup á útlánasafni og yfirtöku á skuldum sjóðsins hefur nú verið auglýst. Einungis þeir aðilar sem uppfylla ofangreind skilyrði koma til greina við forval og skulu erindi frá áhugasömum aðilum berast til framkvæmdanefndar um einkavæðingu fyrir kl. 16.00 föstudaginn 5. ágúst 2005.

                                                                                                                      Reykjavík, 22. júlí 2005
                                                                                                                      Framkvæmdanefnd um einkavæðingu



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum