Hoppa yfir valmynd
5. ágúst 2005 Forsætisráðuneytið

Undirritun kaupsamnings milli íslenska ríkisins og Skipta ehf.

Geir H. Haarde fjármálaráðherra undirritaði í dag kaupsamning f.h. íslenska ríkisins við Skipti ehf. um kaup Skipta ehf. á 98,8% hlut ríkisins í Landssíma Íslands hf. (Símanum). Kaupsamningurinn er gerður á grundvelli tilboðs sem Skipti ehf. gerðu í hlutabréf ríkisins í Símanum þann 28. júlí sl., en það var hæst þriggja tilboða sem bárust í eignarhlut ríkisins.

Helstu atriði kaupsamningsins eru eftirfarandi:

  • Greiðsla kaupverðsins, 66,7 milljarðar króna miðast við gengisskráningu Seðlabanka Íslands 27. júlí 2005. Fer greiðslan fram innan 5 virkra daga frá því að niðurstaða Samkeppniseftirlitsins liggur fyrir og að því gefnu að stofnunin samþykki kaupin fyrir sitt leyti.
  • Kaupverðið skiptist í eftirfarandi gjaldmiðla:
    Íslenskar krónur: 34.505.550.000, Evrur: 310.000.000 og Bandaríkjadali: 125.000.000.
  • Nýjum eigendum er skylt að uppfylla skilyrði ríkisins er fram koma í söluskilmálum. Þannig má enginn einn einstakur aðili, skyldir eða tengdir aðilar, eignast stærri hlut í Símanum en 45% fram að skráningu félagsins á Aðallista í Kauphöll, og ekki minna en 30% af heildarhlutafé félagsins verður, af hálfu kaupanda, að bjóða almenningi og öðrum fjárfestum til kaups, í síðasta lagi fyrir árslok 2007, en fyrir sama tíma skal félagið skráð á Aðallista Kauphallarinnar.

Eftir þessi viðskipti hefur ríkið dregið sig að öllu leyti út úr samkeppnisrekstri á fjarskiptamarkaði.

Umsjónaraðili sölunnar f.h. ríkisins var framkvæmdanefnd um einkavæðingu og aðalráðgjafi nefndarinnar fjármála- og ráðgjafarfyrirtækið Morgan Stanley í Lundúnum.

                                                                                                                      Reykjavík, 5. ágúst 2005
                                                                                                                      Framkvæmdanefnd um einkavæðingu



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum