Hoppa yfir valmynd
1. desember 2005 Forsætisráðuneytið

Úthlutun úr Kristnihátíðarsjóði 2005

Frá úthlutun úr Kristnihátíðarsjóði 2005
Frá úthlutun úr Kristnihátíðarsjóði 2005

Kristnihátíðarsjóður úthlutar styrkjum við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu fimmtudaginn 1. desember. Samtals er úthlutað um 96 m.kr. til 56 verkefna sem tengjast menningar- og trúararfi þjóðarinnar og fornleifarannsóknum.

Kristnihátíðarsjóður var stofnaður til að minnast þess að 1000 ár voru liðin frá því að kristinn siður var lögtekinn á Íslandi. Sjóðurinn starfar eftir lögum nr. 12/2001 um Kristnihátíðarsjóð. Starfstími sjóðsins er fimm ár eða til ársloka 2005. Ríkissjóður hefur lagt til 100 milljónir króna fyrir hvert hinna fimm starfsára sjóðsins. Hlutverk sjóðsins er tvíþætt: Annars vegar er honum ætlað að efla fræðslu og rannsóknir á menningar- og trúararfi þjóðarinnar og stuðla að umræðum um lífsgildi hennar, siðferði og framtíðarsýn. Hins vegar er hlutverk sjóðsins að kosta fornleifarannsóknir á helstu sögustöðum þjóðarinnar, m.a. á Þingvöllum, í Skálholti og á Hólum.

Stjórn Kristnihátíðarsjóðs auglýsti í ágúst sl. eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Í samræmi við hlutverk sjóðsins eru styrkir veittir til tveggja sviða, menningar- og trúararfs og fornleifarannsókna. Verkefnisstjórnir meta styrkhæfi umsókna, hvor á sínu sviði, og gera tillögur til Kristnihátíðarsjóðs um afgreiðslu þeirra. Talsverður hluti þeirra verkefna á sviði menningar og trúar og öll fornleifaverkefnin sem hlutu styrk í ár fengu úthlutað í fyrra, enda uppfylltu þau kröfur um framvindu og árangur.

Stjórn sjóðsins, kjörin af Alþingi, skipa Anna Soffía Hauksdóttir, prófessor, sem jafnframt er formaður, Anna Agnarsdóttir, prófessor, og Þorsteinn Gunnarsson, rektor.

Stjórnin skipaði tvær verkefnisstjórnir, sem gert hafa tillögur til stjórnar um verkefni og framlög til þeirra fyrir hvert starfsár, auk þess að vera stjórninni til ráðgjafar. Formaður verkefnisstjórnar á sviði menningar- og trúararfs, sem hefur aðsetur á Akureyri, er Guðmundur Heiðar Frímannsson, prófessor. Auk hans eiga Guðmundur K. Magnússon, prófessor og séra Lára G. Oddsdóttir sæti í verkefnisstjórninni. Formaður verkefnisstjórnar á sviði fornleifafræði, með aðsetur í Reykjavík, er Guðmundur Hálfdanarson, prófessor. Auk hans eiga Árný E. Sveinbjörnsdóttir, vísindamaður á Jarðvísindastofnun Háskólans og Hjalti Hugason, prófessor, sæti í verkefnisstjórninni.

Menningar- og trúararfur

Sjóðurinn veitir styrki til að efla þekkingu og vitund um menningar- og trúararf þjóðarinnar. Einkum er litið til margvíslegra verkefna er tengjast almenningsfræðslu, umræðum og rannsóknum og skulu verkefnin:

a. miðla fróðleik um siðferðis- og trúarhugmyndir sem mótað hafa þjóðina, t.d. með gerð fræðslu- og námsefnis;

b. stuðla að umræðum um lífsgildi þjóðarinnar, siðferði og framtíðarsýn, fyrir tilstilli mennta- og menningarstofnana eða fjölmiðla;

Verkefnisstjórn um trúar- og menningararf bárust 73 umsóknir og sótt var um 134 milljónir kr. samtals. Verkefnin sem sótt var um styrki til voru fjölbreytileg og flest féllu að markmiðum sjóðsins. Við mat sitt á umsóknum byggði verkefnisstjórnin á þeim viðmiðunum sem koma fram í lögum og reglugerð um Kristnihátíðarsjóð, lagði mat á gæði umsókna og hvernig þær féllu að markmiðum sjóðsins. Stjórn Kristnihátíðarsjóðs hefur samþykkt að 47 umsækjendum verði veittur styrkur, samtals að fjárhæð 38,2 milljónir kr.

Fornleifarannsóknir

Sjóðurinn veitir styrki til fornleifarannsókna, auk kynningar á niðurstöðum þeirra. Einkum er litið til rannsóknarverkefna er varða:

a. mikilvæga sögustaði þjóðarinnar, m.a.. Þingvelli, Skálholt og Hóla í Hjaltadal;

b. aðra staði tengda sögu kristni á Íslandi, m.a. klaustur og kirkjustaði;

c. aðra mikilvæga sögustaði, svo sem verslunarstaði, miðaldabæi og þingstaði.

Einnig er tekið tillit til samvinnu umsækjenda við innlendar og erlendar rannsóknarstofnanir eða fræðimenn og áhersla er lögð á þjálfun og handleiðslu ungra vísindamanna á sviði fornleifafræði á Íslandi.

Verkefnisstjórn á sviði fornleifarannsókna bárust 9 umsóknir, samtals að fjárhæð 116,5 milljónir kr. Við mat á umsóknum byggði verkefnisstjórnin á þeim viðmiðunum sem koma fram í lögum og reglugerð um Kristnihátíðarsjóð, lagði mat á gæði umsókna og hvernig þær féllu að markmiðum sjóðsins. Stjórn Kristnihátíðarsjóðs hefur samþykkt að 9 umsækjendum verði veittur styrkur samtals að upphæð 57,6 milljónir króna. Rannsóknir á sviði fornleifafræði munu fara fram á Þingvöllum, á Hólum í Hjaltadal, í Skálholti, á Kirkjubæjarklaustri, á Skriðuklaustri, í Reykholti og á Gásum í Eyjafirði. Auk þess var veittur styrkur til DNA greiningar á beinagrindum frá Keldudal og rannsóknar á kumlum á Íslandi, en markmið þeirrar rannsóknar er að varpa ljósi á hvaða vitnisburð þau geyma um samfélag og byggð á 9. og 10. öld. Hæsti styrkurinn, 12 milljónir kr., fer til fornleifarannsóknar á Hólum í Hjaltadal.

Nú er komið að síðustu úthlutun sjóðsins og hefur þá verið úthlutað um 500 milljónum króna til rannsókna á þessum sviðum. Í tilefni af því hefur stjórn Kristnihátíðarsjóðs ákveðið að efna til ráðstefnu, sem ber heitið ?Hin forna framtíð", en hún hefst í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins kl. 14. þann 1. desember 2005. Samnefnd sýning verður opnuð sama dag í bókasal Þjóðmenningarhússins. Jafnframt var ákveðið að gefa út rit, þar sem finna má m.a. stuttar lýsingar á flestum verkefnum sem sjóðurinn hefur styrkt, sum að fullu, önnur að hluta.

Eftirfarandi verkefni hljóta styrk á sviði menningar- og trúararfs

  1. Saga biskupsstólanna Hólar ? Skálholt, Gunnar Kristjánsson (Skálholtsstaður), 4, 5 millj. kr.
  2. Siðfræði og samtími, Vilhjálmur Árnason (Siðfræðistofnun), 1, 2 millj. kr.
  3. Íslenska teiknibókin í Árnasafni, Guðbjörg Kristjánsdóttir, 1, 1 millj. kr.
  4. Kristin trú og kvennahreyfingar, Arnfríður Guðmundsdóttir (Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands), 1,1 millj. kr.
  5. Altarisdúkar í íslenskum kirkjum, Oddný E. Magnúsdóttir (Jenný Karlsdóttir), 1 millj. kr.
  6. Eintal sálarinnar við sjálfa sig eftir Martin Moller, Einar Sigurbjörnsson (Guðfræðistofnun Háskóla Íslands), 1 millj. kr.
  7. Ferming í fjórar aldir, Torfi K. Stefánsson Hjaltalín, 1 millj. kr.
  8. Gildismat og velferð barna í neyslusamfélagi nútímans, Vilhjálmur Árnason (Siðfræðistofnun), 1 millj. kr.
  9. Íslensk miðaldaklaustur ? margmiðlunardiskur, Steinunn Kristjánsdóttir (Stofnun Gunnars Gunnarssonar), 1 millj. kr.
  10. Kirkjutónlist á Íslandi, Kvik kvikmyndagerð (Páll Steingrímsson), 1 millj. kr.
  11. Klassískir unglingar, Örn Bárður Jónsson (Neskirkja), 1 millj. kr.
  12. Orgel í Árnesprófastsdæmi, Bjarki Sveinbjörnsson, 1 millj. kr.
  13. Óratórían Cecilía, Inga Rós Ingólfsdóttir (Listvinafélag Hallgrímskirkju),
    1 millj. kr.
  14. Tilvist, trú og tilgangur, Sigurjón Árni Eyjólfsson, 1 millj. kr.
  15. Trúarskoðanir Gríms Thomsens, Gylfi Gunnlaugsson, 1 millj. kr.
  16. Þátttaka fólks með þroskahömlun í trúarlífi samfélagsins, Kristín Björnsdóttir (Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands), 1 millj. kr.
  17. Hallgrímur Pétursson og Guðríður Símonardóttir, Steinunn Jóhannesdóttir, 800 þús. kr.
  18. Inngangsfræði og bókmenntasaga Gamla testamentisins, Kristinn Ólason,
    800 þús. kr.
  19. Menningarsetrið að Útskálum, María Hauksdóttir (Menningarsetrið að Útskálum ehf.), 800 þús. kr.
  20. Rannsókn á íslenskum söngarfi, Guðrún Laufey Guðmundsdóttir, 800 þús. kr.
  21. Saltari Odds Oddssonar, Smári Ólason, 800 þús. kr.
  22. Tennisspaðarnir, Sigurður Ingi Ásgeirsson (Gagnvirkni sf), 800 þús. kr.
  23. Tóntegundabreytingar í gömlum sálmalögum. Rannsókn á sálmabókarhandriti frá um 1600 ( Lbs 524 4to), Ingibjörg Eyþórsdóttir, 800 þús. kr.
  24. Trú og samkynhneigð ? guðfræðileg greinargerð, Jón Helgi Þórarinsson (Leikmannaskóli Þjóðkirkjunnar), 800 þús. kr.
  25. Vídalínspostilla, íslensk alþýðutrú og óútgefnar biblíuþýðingar, Clarence E. Glad, 800 þús. kr.
  26. Vísitasíubækur Brynjólfs biskups Sveinssonar, Svavar Sigmundsson (Örnefnastofnun Íslands), 800 þús. kr.
  27. ?Afmýtólógisering? Biblíunnar? Um notkun og hlutverk goðsagna og goðsögulegra ?mótífa? í biblíulegu samhengi, Jón Ásgeir Sigurvinsson, 700 þús. kr.
  28. Hvað er þá maðurinn? Hannes Björnsson, 700 þús. kr.
  29. KMS ? Kristur, menning, sköpun, Jóna Hrönn Bolladóttir (Miðborgarstarf KFUM og KFUK og kirkjunnar og ÆSKR), 700 þús. kr.
  30. Kirkjur og dýrlingar á Íslandi á miðöldum, Margaret Cormack, 700 þús. kr.
  31. Nýju sunnudagaskólalögin, Hafdís Huld Þrastardóttir, 700 þús. kr.
  32. Ungt fólk í hjálparstarfi ? gerð fræðsluefnis, Dagný Halla Tómasdóttir (Samstarfshópur um starf fyrir ungt fólk í hjálparstarfi), 700 þús. kr.
  33. Jarðeignir kirkjunnar og tekjur af þeim 1000-1550, Árni Daníel Júlíusson, 600 þús. kr.
  34. Próventa í klaustrum, Jón Ólafur Ísberg, 600 þús. kr.
  35. Suðurganga Nikulásar og pílagrímaferðir Íslendinga, Sumarliði R. Ísleifsson (Penna sf), 600 þús. kr.
  36. Að efla siðferðilegt sjálfræði, Jóhann Björnsson (Réttarholtsskóli), 500 þús. kr.
  37. Andlegir skulu í lög setja. Prestastefnur á Íslandi frá siðbreytingu til loka átjándu aldar, Skúli S. Ólafsson, 500 þús. kr.
  38. Aristóteles og íslenska lífsleiknin, Kristján Kristjánsson, 500 þús. kr.
  39. Áhrif byggingarlags íslensku dómkirknanna á aðrar kirkjur í landinu á fyrri öldum, Guðrún Harðardóttir, 500 þús. kr.
  40. Bragfræði helgikvæða og sálma 1550?1800, Kristján Eiríksson (Ferskeytlan ehf), 500 þús. kr.
  41. Formálar Lúthers að Biblíunni, Árni Svanur Daníelsson (Hið íslenska bókmenntafélag), 500 þús. kr.
  42. Hvað þurfum við að vita um íslam? Magnús Þorkell Bernharðsson (Þórir Jónsson Hraundal), 500 þús. kr.
  43. Laufás: Kirkjur, Gunnar Harðarson (Hið íslenska bókmenntafélag), 500 þús. kr.
  44. Ráðstefna um Hallgrím Pétursson og samtíð hans, Margrét Eggertsdóttir, 500 þús. kr.
  45. Sr. Hallgrímur og fermingarbörnin í Vatnaskógi, Ármann Hákon Gunnarsson (Skógarmenn KFUM ? Vatnaskógur), 500 þús. kr.
  46. Stúdentar heiðra minningu Fjölnismanna, Guðni Már Harðarson (Kristilegt stúdentafélag), 500 þús. kr.
  47. Kristur, kirkja og kvikmyndir, Sigurður Árni Þórðarson (Neskirkja), 300 þús. kr.

og á sviði fornleifafræði:

  1. Hólarannsókn. ? Umsækjendur eru Ragnheiður Traustadóttir, Hólaskóli, Byggðasafn Skagfirðinga og Þjóðminjasafn Íslands. Verkefnisstjóri er Ragnheiður Traustadóttir. Styrkupphæð er 12 m. kr.
  2. Kuml og samfélag. Umsækjandi og verkefnisstjóri er Adolf Friðriksson fornleifastofnun Íslands. Styrkupphæð er 2,2 m. kr.
  3. Rannsókn kirkjunnar í Reykholti. ? Umsækjendur eru Þjóðminjasafn Íslands og fornleifastofnun Íslands. Verkefnisstjóri er Guðrún Sveinbjarnardóttir. Styrkupphæð er 4,7 m. kr.
  4. Rannsókn á rústum nunnuklaustursins á Kirkjubæ. ? Umsækjandi er Kirkjubæjarstofa. Verkefnisstjóri er Bjarni F. Einarsson. Styrkupphæð er 8,2 m. kr.
  5. Skálholt ? höfuðstaður Íslands í 700 ár. ? Umsækjandi er Fornleifastofnun Íslands. Verkefnisstjóri er Mjöll Snæsdóttir. Styrkupphæð er 10 m. kr.
  6. Skriðuklaustur ? híbýli helgra manna. ? Umsækjandi er Skriðuklausturrannsóknir. Verkefnisstjóri er Steinunn Kristjánsdóttir. Styrkupphæð er 8,2 m. kr.
  7. Þingvellir og þinghald til forna. ? Umsækjandi er Fornleifastofnun Íslands (í umboði Þingvallanefndar). Verkefnisstjórar eru Adolf Friðriksson og Sigurður Líndal. Styrkupphæð er 7 m. kr.
  8. Þverfaglegar rannsóknir og kynning á Gásum í Eyjafirði. ? Umsækjandi er Minjasafnið á Akureyri ásamt Þjóðminjasafni Íslands. Verkefnisstjóri er Guðrún M. Kristinsdóttir. Styrkupphæð er 4,5 m. kr.
  9. DNA-greining á beinagrindum frá Keldudal ? Umsækjandi er Byggðasafn Skagfirðinga og Forskningslaboratoriet, Retsmedicinsk Institut, Kaupmannahafnarháskóla. Verkefnisstjóri er Margrét Ásta Kristinsdóttir. Styrkupphæð er 800 þús. kr.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum