Hoppa yfir valmynd
1. desember 2002 Forsætisráðuneytið

Úthlutun styrkja úr Kristnihátíðarsjóði 2002

Fréttatilkynning 1. desember 2002

Úthlutun styrkja úr Kristnihátíðarsjóði 2002

Kristnihátíðarsjóður úthlutar við athöfn í Þjóðmenningarhúsi 1. desember 94 milljónum kr. til 55 verkefna sem tengjast menningar- og trúararfi þjóðarinnar og fornleifarannsóknum.

Kristnihátíðarsjóður, sem starfar samkvæmt lögum nr. 12 frá 28. febrúar 2001, var stofnaður til að minnast þess að 1000 ár eru liðin frá því að kristinn siður var lögtekinn á Íslandi. Hlutverk sjóðsins er tvíþætt:

  • að efla fræðslu og rannsóknir á menningar- og trúararfi þjóðarinnar og stuðla að umræðum um lífsgildi hennar, siðferði og framtíðarsýn;
  • að kosta fornleifarannsóknir á helstu sögustöðum þjóðarinnar, m.a. á Þingvöllum, í Skálholti og á Hólum í Hjaltadal.

Starfstími sjóðsins er til ársloka 2005. Ríkissjóður leggur sjóðnum til 100 milljónir kr. fyrir hvert starfsár.

Stjórn Kristnihátíðarsjóðs auglýsti í ágúst sl. eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Í samræmi við hlutverk sjóðsins eru styrkir veittir til tveggja sviða, menningar- og trúararfs og fornleifarannsókna. Verkefnisstjórnir meta styrkhæfi umsókna, hvor á sínu sviði, og gera tillögur til Kristnihátíðarsjóðs um afgreiðslu þeirra. Verulegur hluti þeirra verkefna sem hlutu styrk í ár fengu úthlutað í fyrra, enda uppfylltu þau kröfur um framvindu og árangur.

Stjórn Kristnihátíðarsjóðs skipa Anna Soffía Hauksdóttir, formaður, Anna Agnarsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson.

Menningar- og trúararfur

Sjóðurinn veitir styrki til að efla þekkingu og vitund um menningar- og trúararf þjóðarinnar. Einkum er litið til margvíslegra verkefna er tengjast almenningsfræðslu, umræðum og rannsóknum og skulu verkefnin:

  1. miðla fróðleik um siðferðis- og trúarhugmyndir sem mótað hafa þjóðina, t.d. með gerð fræðslu- og námsefnis;
  2. stuðla að umræðum um lífsgildi þjóðarinnar, siðferði og framtíðarsýn,fyrir tilstilli mennta- og menningarstofnana eða fjölmiðla;

Verkefnisstjórn um trúar- og menningararf bárust 115 umsóknir og sótt var um 270 milljónir kr. samtals. Verkefnin sem sótt var um styrki til voru fjölbreytileg og flest féllu að markmiðum sjóðsins.

Við mat sitt á umsóknum byggði verkefnisstjórnin á þeim viðmiðunum sem koma fram í lögum og reglugerð um Kristnihátíðarsjóð, lagði mat á gæði umsókna og hvernig þær féllu að markmiðum sjóðsins. Stjórn Kristnihátíðarsjóðs hefur samþykkt að 47 umsækjendum verði veittur styrkur, samtals að fjárhæð 43.6 milljónir kr.

Stjórn Kristnihátíðarsjóðs hefur, að tillögu verkefnisstjórnar, samþykkt að hæsti styrkurinn, 4 milljónir króna, fari í það verkefni að rita sögu biskupsstólanna í Skálholti og á Hólum.

Verkefnisstjórn Kristnihátíðarsjóðs á sviði menningar- og trúararfs skipa Guðmundur Heiðar Frímannsson, formaður, Guðmundur K. Magnússon og séra Lára G. Oddsdóttir.

Fornleifarannsóknir

Sjóðurinn veitir styrki til fornleifarannsókna, auk kynningar á niðurstöðum þeirra. Einkum er litið til rannsóknarverkefna er varða:

a. mikilvæga sögustaði þjóðarinnar, m.a. Þingvelli, Skálholt og Hóla í Hjaltadal;
b. aðra staði tengda sögu kristni á Íslandi, m.a. klaustur og kirkjustaði;
c. aðra mikilvæga sögustaði, svo sem verslunarstaði, miðaldabæi og þingstaði.

Einnig er tekið tillit til samvinnu umsækjenda við innlendar og erlendar rannsóknarstofnanir eða fræðimenn og áhersla er lögð á þjálfun og handleiðslu ungra vísindamanna á sviði fornleifafræði á Íslandi.

Verkefnisstjórn á sviði fornleifarannsókna bárust 17 umsóknir, samtals að fjárhæð 162 milljónir kr. Við mat á umsóknum byggði verkefnisstjórnin á þeim viðmiðunum sem koma fram í lögum og reglugerð um Kristnihátíðarsjóð, lagði mat á gæði umsókna og hvernig þær féllu að markmiðum sjóðsins.

Stjórn Kristnihátíðarsjóðs hefur samþykkt að 8 umsækjendum verði veittur styrkur samtals að upphæð 50.5 milljónir króna. Rannsóknir á sviði fornleifafræði munu fara fram á Þingvöllum, á Hólum í Hjaltadal, í Skálholti, á Kirkjubæjarklaustri, á Skriðuklaustri, í Reykholti og á Gásum í Eyjafirði. Auk þess var veittur styrkur til rannsóknar á kumlum á Íslandi, en markmið þeirrar rannsóknar er að varpa ljósi á hvaða vitnisburð þau geyma um samfélag og byggð á 9. og 10. öld. Hæsti styrkurinn, 11 milljónir kr., fer til fornleifarannsóknar á Hólum í Hjaltadal.

Verkefnisstjórn Kristnihátíðarsjóðs á sviði fornleifarannsókna skipa Guðmundur Hálfdanarson, formaður, Árný E. Sveinbjörnsdóttir og Hjalti Hugason.

Eftirfarandi verkefni hljóta styrk á sviði menningar- og trúararfs:


1. Saga biskupsstólanna, Gunnar Kristjánsson (Skálholtsstaður), 4 millj. kr.
2. Réttlæti og ást: til móts við nýja kynlífssiðfræði, Sólveig Anna Bóasdóttir (Rannsóknarstofa í Kvennafræðum), 1.6 millj. kr.
3. Sr. Matthías Jochumsson, Þórunn Valdimarsdóttir, 1.6 millj. kr.
4. Að rækta lífsgildi í skólastarfi: Uppeldissýn kennara, Sigrún Aðalbjarnardóttir, 1.2 millj. kr.
5. Bannfæringar á Íslandi á síðmiðöldum, Lára Magnúsardóttir, 1.2 millj. kr.
6. Fræðileg útgáfa á sálmum og kvæðum Hallgríms Péturssonar, Svanhildur Óskarsdóttir og Margrét Eggertsdóttir (Stofnun Árna Magnússonar), 1.2 millj. kr.
7. "Guði treysti ég" - rannsókn á trúarhugmyndum íslenskra kvenna á fyrri hluta 19. aldar eins og þær birtast í bréfum og öðrum frumheimildum kvenna frá þeim tíma, Karitas Kristjánsdóttir, 1.2 millj. kr.
8. Íslenska teiknibókin í Árnasafni, Guðbjörg Kristjánsdóttir (Stofnun Árna Magnússonar), 1.2 millj. kr.
9. Lífsleikni í leikskóla, Sigríður Síta Pétursdóttir (Þróunarverkefnið Lífsleikni í leikskóla, Háskólinn á Akureyri), 1.2 millj. kr.
10. Siðanefndir starfsstétta, Róbert H. Haraldsson (Siðfræðistofnun HÍ), 1.2 millj. kr.
11. Siðfræðivefur, Salvör Nordal (Siðfræðistofnun), 1.2 millj. kr.
12. Ánauð viljans (De servo arbitrio) eftir Martein Lúther, Ólafur Páll Jónsson (Hið íslenska bókmenntafélag), 1 millj kr.
13. Heilagra manna sögur, Sverrir Tómasson, Guðrún Nordal og Einar Sigurbjörnsson (Bókmenntafræðistofnun HÍ / Guðfræðistofnun HÍ), 1 millj. kr.
14. Íslensk biblíuguðfræði – Rómverjabréfið í skýringum íslenskra guðfræðinga, Clarence E. Glad, 1 millj. kr.
15. Lífsleikni og sjálfstyrking fyrir ungt fólk, Petrína Mjöll Jóhannesdóttir (Biskupsstofa), 1 millj. kr.
16. Saga KFUM & KFUK í Reykjavík 1908-1918, Þórarinn Björnsson, 1 millj. kr.
17. Saga klausturs í Kirkjubæ og trúarmenning kvenna í tengslum við það, Hjalti Hugason (Kirkjubæjarstofa), 1 millj. kr.
18. Trúarmenning og siðfræði íslenskra bændakvenna á 19. öld, Inga Huld Hákonardóttir (Guðfræðistofnun Háskóla Íslands), 1 millj. kr.
19. Trúarsiðir á 20. öld (skírn, ferming, brúðkaup, útför), Hallgerður Gísladóttir (Þjóðminjasafn Íslands), 1 millj. kr.
20. Trúfrelsi, þjóðkirkja, samband ríkis og kirkju 1874-1997, Sigurjón Árni Eyjólfsson, 1 millj.
21. Erfiljóð frá 17. og 18. öld, Þórunn Sigurðardóttir, 800 þús. kr.
22. Gömlu lögin við Passíusálma Hallgríms Péturssonar, Smári Ólason, 800 þús. kr.
23. Íslensk myndlist fyrri alda - frá siðaskiptum til 19. aldar, Þóra Kristjánsdóttir (Þjóðminjasafn Íslands), 800 þús.
24. Ísmús - íslensk músík, Bjarki Sveinbjörnsson (Músík og saga ehf), 800 þús. kr.
25. Líkfylgd Jóns Arasonar, Gerður Bolladóttir, 800 þús. kr.
26. Trú og kvikmyndir, Gunnlaugur A. Jónsson (Deus ex cinema), 800 þús.
27. Trú og töfrar, Jón Jónsson (Strandagaldur ses), 800 þús. kr.
28. Uppteiknað, sungið, sagt og téð, Þorsteinn Helgason (Seylan ehf), 800 þús. kr.
29. Þorlákstíðir, Sverrir Guðjónsson (Voces Thules), 800 þús. kr.
30. Þórbergur Þórðarson: trúarviðhorf og deilur um kristindóminn, Soffía Auður Birgisdóttir, 800 þús. kr.
31. Þýdd guðsorðarit á Íslandi á 17. öld, Einar Sigurbjörnsson (Guðfræðistofnun HÍ), 800 þús. kr.
32. Kirkja og skóli á 20. öld, Sigurður Pálsson, 700 þús. kr.
33. Skoða þú verk Guðs, Gyða Karlsdóttir (Landssamband KFUM & KFUK), 700 þús. kr.
34. Barnaútvarp - útvarp Latibær, Halldór Reynisson (Biskupsstofa), 600 þús. kr.
35. Gagnvirkt net-kennsluforrit um kristni á Íslandi, Sigurður Ingi Friðleifsson, 600 þús. kr.
36. Gardur.is, Þórsteinn Ragnarsson (In Memoriam ehf), 600 þús.
37. Hljóðritun á þjóðlögum við Passíusálma Hallgríms Péturssonar, Guðmundur Sigurðsson, 600 þús. kr.
38. Kristin trú og veruleiki fermingarbarna, Guðrún Karlsdóttir, 600 þús. kr.
39. Myndlist og tónlist í íslenskum handritum, Hringur Hafsteinsson (Collegium Musicum), 600 þús. kr.
40. Sálmar í 1000 ár, Edda Möller (Kirkjuhúsið - Skálholtsútgáfan), 600 þús. kr.
41. Skálholtsdiskar, Helga Ingólfsdóttir (Sumaratónleikar í Skálholti), 600 þús. kr.
42. Sköpunartexti og sköpunartrú. Þóris Kr. Þórðarsonar fyrirlestrar veturinn 2003-2004, Kristinn Ólason, 600 þús. kr.
43. Lífsviðhorf og gildismat unglinga, Gunnar J. Gunnarsson og Gunnar Finnbogason, 500 þús. kr.
44. Saga kristinnar kirkju í máli og myndum á Netinu, Skúli Thorarensen (Skólavefurinn ehf), 500 þús. kr.
45. Félagsstarf á hjólum, Ragnar Schram, (KFUM & KFUK Reykjavík), 400 þús. kr.
46. Fjölþjóðasamfélagið og trúarbrögð þess, Ragnheiður Sverrisdóttir (Biskupsstofa), 400 þús. kr.
47. Kirkjumiðstöðin Reykholt, Helgi Þorláksson (Sagnfræðistofnun HÍ), 400 þús. kr.

Eftirfarandi verkefni hljóta styrk á sviði fornleifarannsókna:

1. Hólarannsókn, Ragnheiður Traustadóttir (Hólaskóli, Byggðasafn
Skagfirðinga og Þjóðminjasafn Íslands), 11 millj. kr.
2. Skálholt – höfuðstaður Íslands í 700 ár, Mjöll Snæsdóttir (Fornleifastofnun Íslands
og Þjóðminjasafn Íslands), 10 millj. kr.
3. Rannsókn á rústum nunnuklaustursins á Kirkjubæ, Bjarni F. Einarsson
(Kirkjubæjarstofa), 7 millj. kr.
4. Skriðuklaustur – híbýli helgra manna, Steinunn Kristjánsdóttir
(Skriðuklausturrannsóknir), 7 millj. kr.
5. Þingvellir og þinghald til forna, Adolf Friðriksson (Fornleifastofnun Íslands), 5 millj. kr.
6. Þverfaglegar rannsóknir og kynning á Gásum í Eyjafirði, Guðrún M. Kristinsdóttir
(Minjasafnið á Akureyri), 4,5 millj. kr.
7. Rannsókn kirkjunnar í Reykholti, Guðrún Sveinbjarnardóttir (Þjóðminjasafn Íslands), 4 millj. kr.
8. Kuml og samfélag, Adolf Friðriksson, 2 millj. kr.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum