Hoppa yfir valmynd
29. maí 2006 Forsætisráðuneytið

Úthlutun úr sjóðnum Þjóðhátíðargjöf Norðmanna 2006

Úthlutað hefur verið styrkjum þessa árs úr sjóðnum Þjóðhátíðargjöf Norðmanna. Norska Stórþingið samþykkti í tilefni ellefu alda afmælis Íslandsbyggðar 1974 að færa Íslendingum eina milljón norskra króna að gjöf í ferðasjóð. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins skal ráðstöfunarfénu, vaxtatekjum af höfuðstól, varið til að styrkja hópferðir Íslendinga til Noregs.

Styrkir voru fyrst veittir úr sjóðnum 1976 og fór nú fram tuttugasta og níunda úthlutun. Ráðstöfunarfé sjóðsins var að þessu sinni um 760 þúsund krónur. Styrkumsóknir voru 16, en samþykkt var að styrkja eftirtalda aðila: vegaHÚSIÐ - Menningarmiðstöð ungs fólks á Austurlandi, Framhaldsdeild Fjölmenntar á Akureyri og Gásahandverkshópinn í Eyjafirði.

Í Reykjavík, 29. maí 2006.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum