Hoppa yfir valmynd
1. júní 2006 Forsætisráðuneytið

Styrkveitingar Þjóðhátíðarsjóðs 2006

Lokið er úthlutun styrkja úr Þjóðhátíðarsjóði fyrir árið 2006 og þar með tuttugustu og níundu úthlutun úr sjóðnum. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins, nr. 361 frá 30. september 1977, sbr. auglýsingar nr. 673 frá 12. september 2000 og nr. 987 frá 19. október 2005 um breytingu á skipulagsskránni er tilgangur sjóðsins að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf. Stjórn sjóðsins úthlutar ráðstöfunarfé hverju sinni í samræmi við megintilgang hans. Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlög til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau. Í samræmi við 6. gr. skipulagsskrár fyrir sjóðinn hafa þeir aðilar, sem skipa skulu menn í stjórn sjóðsins valið eftirtalda til setu í henni fyrir yfirstandandi kjörtímabil, sem hófst hinn 1. janúar 2006 og stendur til ársloka 2009, en þeir eru: Margrét Bóasdóttir, söngkona, formaður skipuð af forsætisráðherra. Eiríkur Guðnason, seðlabankastjóri, varaformaður, tilnefndur af Seðlabanka Íslands. Jónína Michaelsdóttir, rithöfundur, Margrét K. Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri og Björn Teitsson, magister, sem kjörin eru af Alþingi. Ritari sjóðsstjórnar er Sigfús Gauti Þórðarson, lögfræðingur. Í samræmi við 5. gr. skipulagsskrár sjóðsins voru styrkir auglýstir til umsóknar í fjölmiðlum um sl. áramót með umsóknarfresti til og með 28. febrúar sl. Til úthlutunar í ár koma allt að kr. 2.600.000. Alls bárust 80 gildar umsóknir um styrki að fjárhæð um 49,0 millj. kr. ‾

Úthlutun styrkja úr Þjóðhátíðarsjóði fyrir árið 2006 er sem hér segir:

Styrkþegi:

Verkefni:

Fjárhæð í kr.:

1.

Vinir Skaftholtsrétta

Kristján H. Guðmundsson

Brúnum

801 Selfossi

 

 

Endurbygging Skaftholtsrétta, elstu

fjárrétta landsins.

        

150.000 

 

2.

 

Minjasafn Austurlands

Rannveig Þórhallsdóttir

safnstjóri

Laufskógum 1

700 Egilsstöðum

 

Forvarsla á ferjubáti, altaristöflu og brúðkaupstöflu.

 

200.000

 

3.

 

Minjasafnið á Akureyri

Kristín Sóley Björnsdóttir

Aðalstræti 58

600 Akureyri

 

 

Skiltagerð til upplýsingar

fyrir ferðamenn sem koma að Gásum í Eyjafirði.

 

     

 100.000

 

4.

 

Landsbókasafn Íslands

-Háskólabókasafn

Sigrún Klara Hannesdóttir

landsbókavörður

Arngrímsgötu 3

107 Reykjavík

 

 

Að gera við handritið EVANGELIAE,

Pistlar og Collectur, sem ber safnmerkið Lbs 1235 8vo.

 

         150.000

 

5.

 

Björn Hróarsson

hellafræðingur

Strýtuseli 18

109 Reykjavík

 

Að setja saman viðamikið alþýðlegt fræðirit um hraunhella á Íslandi.

 

 

      150.000

 

 

6.

 

 

Þórarinn Hjartarson

sagnfræðingur

Spítalavegi 17

600 Akureyri

 

 

 

Að vinna við útgáfu á ástarljóðum Páls Ólafssonar í tilefni af einnar aldar ártíðar skáldsins.

 

 

100.000

 

7.

 

Íslensk sönglist/Ísalög

-tónverkamiðstöð

Jón Kristinn Cortez

Tunguvegi 1

108 Reykjavík

 

 

Að gefa út öll einsöngslög dr. Páls Ísólfssonar.

 

100.000

 

8.

 

Hugrún Ívarsdóttir

verkefnisstjóri

Strandgötu 43

600 Akureyri

 

Að gefa út bók á fjórum tungumálum um mynsturgerð í íslenskri matarmenningu.

 

75.000

 

9.

 

Rúnar Leifsson

Blikabraut 1

230 Keflavík

 

Að ljúka úrvinnslu uppgraftar sem fram fór 1960-1969 á miðaldabænum Reyðarfelli, og skrifa heildstæða úttekt á rannsókninni til útgáfu.

 

100.000

 

10.

 

Nonnahús

Brynhildur Pétursdóttir

safnvörður

Aðalstræti 54

600 Akureyri

 

 setja upp sýningu árið 2007 í tilefni þess að þá eru liðin 150 ár frá fæðingu Jóns Sveinsonar, ,,Nonna”.

 

 

150.000

 

11.

 

Seylan ehf.

Hjálmtýr Heiðdal

Laufásvegi 54

101 Reykjavík

 

Að gera tvo heimildarþætti um íslenskan tónlistararf bæði fyrir sjónvarp og útgáfu á DVD diskum.

 

 

100.000

 

12.

 

Hollvinir Húna II

Þorsteinn Pétursson

Stapasíðu 11i

603 Akureyri

 

 

 

 

Til greiðslu á grunnkostnaði

bátsins Húna II, þ.e. slipptöku, málningu, tryggingum og skoðunargjöldum.

 

100.000

 

13.

 

Þjóðminjasafn Íslands

Margrét  Hallgrímsdóttir

þjóðminjavörður

Suðurgötu 41

101 Reykjavík

 

 

 

Að ljúka C-14 aldurs-greiningu á nokkrum miðaldatextilum og gera niðurstöður þeirra aðgengilegar með sýningu og í viðauka rannsóknarrits.

 

150.000

 

14.

 

Kvenfélagið Iðja, Miðfirði

Aðalsteinn Helgason

Dvalarheimilinu Grund

Hringbraut 50

107 Reykjavík

 

 

Að ljúka grisjun í elsta hluta Ásdísarlundar í Miðfirði.

 

50.000

 

15.

 

Guðbrandsstofnun

Hólum í Hjaltadal

Jón A. Baldvinsson vígslubiskup, form. stjórnar

551 Sauðárkróki

 

 

Að setja upp sýningu í tengslum við 900 ára afmæli Hólastaðar,  þar sem gerð verða skil á sögu biskupanna.

 

150.000

 

16.

 

Félag um Þjóðlagasetur

sr. Bjarna Þorsteinssonar

 á Siglufirði

Gunnsteinn Ólafsson, formaður

Sjávargötu 19

225 Álftanesi

 

 

Sýning tengd þjóðlagasöfnun sr. Bjarna Þorsteinssonar.

 

150.000

 

17.

 

Safnasafnið, Svalbarðseyri

Níels Hafstein

601 Akureyri

 

Viðgerð innandyra á ,,Gömlu Búð” sem reist var árið 1900 og flutt verður  á lóð safnsins.  

 

100.000

 

18.

 

Áhugahópur íbúa á Svalbarðsströnd

sr. Pétur Þórarinsson

Laufási

601 Akureyri

 

 

Að vinna að lagfæringu og varðveislu gamalla minja í kirkjugarði að Svalbarði á Svalbarðsströnd.

 

150.000

 

19.

 

Þórbergssetur

sjálfseignarstofnun

Þorbjörg Arnórsdóttir

Hala Suðursveit

781 Hornafirði

 

Að setja upp sýningu í minningu Þórbergs Þórðarsonar rithöfundar.

 

125.000

 

20.

 

Landmark kvikmyndagerð

Dúi J. Landmark

Gullteigi 18

105 Reykjavík

 

Að framleiða kvikmynd um fuglalíf sem ber heitið ,,Út í móa”.

 

150.000

 

 

21.

 

 

Víkin – Sjóminjasafnið í Reykjavík ses.

Eiríkur P. Jörundsson sviðsstj.

Grandagarði 8

101 Reykjavík

 

 

Gerð handrits og undir-búningur að sýningu um tómthúslíf í Reykjavík á 19. öld.

 

 

100.000

 

 

 

 

 



                                                                                                                                                                  Alls kr.  2.600.000

 

 

Reykjavík 1. júní 2006 

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum