Hoppa yfir valmynd
15. júní 2006 Forsætisráðuneytið

Breytingar á skipan ráðherraembætta

Á Bessastöðum í dag voru haldnir tveir fundir ríkisráðs. Á þeim fyrri voru endurstaðfestar ýmsar afgreiðslur, sem fram höfðu farið utan ríkisráðsfundar. Á þeim síðari var þeim Sigríði Önnu Þórðardóttur og Jóni Kristjánssyni veitt lausn frá embættum ráðherra í ríkisstjórn Íslands.

Jafnframt var Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra og ráðherra Hagstofu Íslands og Geir H. Haarde utanríkisráðherra veitt lausn frá þeim embættum og Geir H. Haarde skipaður forsætisráðherra og ráðherra Hagstofu Íslands.

Þá var fallist á að veita Valgerði Sverrisdóttur lausn frá embætti iðnaðarráðherra og viðskiptaráðherra og skipa hana utanríkisráðherra. Ennfremur að skipa Jónínu Bjartmarz alþingismann í embætti umhverfisráðherra, Jón Sigurðsson rekstrarhagfræðing í embætti iðnaðarráðherra og viðskiptaráðherra, og Magnús Stefánsson alþingismann í embætti félagsmálaráðherra.

Þá staðfesti forseti Íslands svohljóðandi úrskurð um skiptingu starfa ráðherra:

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, laga og reglugerða um Stjórnarráð Íslands, er störfum þannig skipt með ráðherrum:

 

  • Geir Hilmar Haarde fer með forsætisráðuneytið og Hagstofu Íslands.
  • Valgerður Sverrisdóttir fer með utanríkisráðuneytið.
  • Árni M. Mathiesen fer með fjármálaráðuneytið.
  • Björn Bjarnason fer með dóms- og kirkjumálaráðuneytið.
  • Einar K. Guðfinnsson fer með sjávarútvegsráðuneytið.
  • Guðni Ágústsson fer með landbúnaðarráðuneytið.
  • Jón Sigurðsson fer með iðnaðarráðuneytið og viðskiptaráðuneytið.
  • Jónína Bjartmarz fer með umhverfisráðuneytið.
  • Magnús Stefánsson fer með félagsmálaráðuneytið.
  • Siv Friðleifsdóttir fer með heilbrigðis- og tryggingamálaraáðuneytið
  • Sturla Böðvarsson fer með samgönguráðuneytið.
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fer með menntamálaráðuneytið.

 

            Með úrskurði þessum falla úr gildi eldri ákvæði um skiptingu starfa ráðherra.“

 

                                                                                                              Ríkisráðsritari, 15. júní 2006



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum