Hoppa yfir valmynd
26. júní 2007 Forsætisráðuneytið

Auglýsing um styrki Jafnréttissjóðs

Jafnréttissjóður


Auglýsing

Starfræktur er sérstakur rannsóknarsjóður, Jafnréttissjóður og er tilgangur hans að efla kynjarannsóknir og stuðla þannig að bættri stöðu kvenna og karla og framgangi jafnréttis.

Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki úr Jafnréttissjóði. Í samræmi við hlutverk sjóðsins verða veittir styrkir til rannsókna sem tengjast jafnréttismálum.

Gert er ráð fyrir að sjóðurinn hafi 10 millj. kr. til ráðstöfunar fyrir hvert starfsár og að styrkir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm.

Gerðar eru skýrar faglegar og fræðilegar kröfur til umsækjenda. Ekki verða veittir styrkir til verkefna sem þegar er lokið.

Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum. Þau má finna á vefsíðu forsætisráðuneytis (www.forsaetisraduneyti.is, Jafnréttissjóður). Enn fremur má nálgast eyðublöð á skrifstofu ráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg (sími 545 8400, netfang [email protected]).

Umsóknarfrestur er til 1. september 2007 og verður úthlutað úr sjóðnum á degi Sameinuðu þjóðanna, 24. október 2007. Umsóknir til Jafnréttissjóðs skal senda forsætisráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, 150 Reykjavík.

Jafréttissjóður starfar samkvæmt reglum nr. 513/2006, um úthlutun styrkja Jafnréttissjóðs.


Reykjavík 26. júní 2007

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum