Hoppa yfir valmynd
12. september 2006 Forsætisráðuneytið

Starfshópur um Einfaldara Ísland skilar tillögum

Starfshópur stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins sem forsætisráðherra skipaði til að undirbúa aðgerðaáætlunina „Einfaldara Ísland" hefur skilað tillögum sínum. Meginmarkmið áætlunarinnar, sem kynnt var í stefnuræðu forsætisráðherra haustið 2005, verður einföldun laga og reglna, ekki síst til þess að auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Starfshópurinn leggur til aðgerðaáætluninni verði markaður þriggja ára tímarammi.Tekin verði upp samræmd vinnubrögð hjá ráðuneytunum um samráð við hagsmunaaðila og aðra sem löggjöf snertir áður en frumvörp eru lögð fram á Alþingi. Þá er hvatt til þess að enn betur verði hugað að áhrifum löggjafar áður en reglur eru settar. Nú þegar er lagt mat á áhrif fyrirhugaðrar lagasetningar á kostnað ríkissjóðs og tekjur og útgjöld sveitarfélaga. Æskilegt er samkvæmt starfshópnum að í auknum mæli verði lagt mat á kostnað fyrirtækja af nýrri löggjöf, hvort stjórnsýslan sé í stakk búin til að sinna nýjum eða breyttum verkefnum og loks hver séu áhrif löggjafar á borgarana. Þá er lagt til að hvert ráðuneyti geri langtímaáætlun um einföldun laga og reglna á þeim sviðum sem undir þau heyra. Slíkar áætlanir tilgreini forgangsmálaflokka þar sem þörf er á einföldun og samræmingu og setji raunhæf og mælanleg markmið.

Tillögurnar eru nú til meðferðar á vettvangi ríkisstjórnarinnar.

Formaður starfshópsins var Páll Þórhallsson lögfræðingur í forsætisráðuneytinu. Aðrir í starfshópnum voru Anna Guðrún Björnsdóttir sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Hannes G. Sigurðsson aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Baldur Pétursson deildarstjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu, Ingvar Sverrisson lögfræðingur, Alþýðusambandi Íslands, Ingvi Már Pálsson lögfræðingur í fjármálaráðuneytinu, Katrín Pétursdóttir framkvæmdastjóri Lýsis hf., Kristinn Hugason stjórnsýslufræðingur í sjávarútvegsráðuneytinu og Sigríður A. Arnardóttir skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu.

Tillögur starfshóps um Einfaldara Ísland.

                                                   Reykjavík 12. september 2006



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum