Hoppa yfir valmynd
26. september 2006 Forsætisráðuneytið

Samkomulag milli Íslands og Bandaríkjanna um varnarmál

Samkomulag hefur náðst milli Íslands og Bandaríkjanna um varnarmál og skil Bandaríkjanna til Íslands á landi og mannvirkjum á varnarsvæðum.

Meginmarkmið samningaviðræðnanna voru að tryggja varnir landsins með viðunandi hætti eftir að fastri viðveru Bandaríkjahers á Íslandi lýkur og tryggja snurðulausa yfirtöku Íslands á rekstri alþjóðaflugvallarins í Keflavík. Ríkisstjórn Íslands telur að þessi markmið hafi náðst.

Í niðurstöðu samningaviðræðna ríkjanna felast eftirfarandi atriði:

  1. Samkomulag Íslands og Bandaríkjanna um varnarmál
  2. Samningur Íslands og Bandaríkjanna um skil á landi og mannvirkjum
  3. Samkomulag um afhendingu búnaðar og tækja vegna yfirtöku Íslands á rekstri alþjóðaflugvallarins í Keflavík
  4. Samningur um leigu á búnaði og tækjum fyrir alþjóðaflugvöllinn í Keflavík

Þá hefur ríkisstjórnin gefið út í dag yfirlýsingu um ný verkefni íslenskra stjórnvalda við brottför varnarliðsins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum