Hoppa yfir valmynd
24. október 2006 Forsætisráðuneytið

Stofnun Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar ehf.

Stofnfundur Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar ehf. var haldinn í Reykjanesbæ í dag, í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 26. september sl. Félagið, sem lýtur forræði forsætisráðherra, mun leiða þróun og umbreytingu á varnarsvæði því á Keflavíkurflugvelli sem koma á í arðbær borgaraleg not. Í því felst m.a. nauðsynleg undirbúningsvinna, svo sem úttekt á svæðinu og á þróunar- og vaxtarmöguleikum sem í því felast og samráð við aðila sem þar hafa hagsmuna að gæta. Þá mun félagið á grundvelli þjónustusamninga við ríkið annast rekstur, umsjón og umsýslu tiltekinna eigna íslenska ríkisins á svæðinu, þ.m.t. umsjón með sölu og útleigu eigna, hreinsun svæða og eftir atvikum niðurrifi mannvirkja, sem og önnur skyld starfsemi.

Stjórn Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar ehf. er skipuð Magnúsi Gunnarssyni, sem jafnframt er formaður stjórnar, Stefáni Þórarinssyni og Árna Sigfússyni. Varamenn eru Hildur Árnadóttir, Helga Sigrún Harðardóttir og Sigurður Valur Ásbjarnarson.


                                                                                                   Reykjavík 24. október 2006



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum