Hoppa yfir valmynd
28. desember 2006 Forsætisráðuneytið

Frá Þjóðhátíðarsjóði

Þjóðhátíðarsjóður

auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 2007.

Þjóðhátíðarsjóður, sem starfar samkvæmt skipulagsskrá nr. 361 frá 30. september 1977 með áorðnum breytingum, var stofnaður í tilefni af 1100 ára búsetu á Íslandi 1974.

Tilgangur sjóðsins er:

  • að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf.

Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlög til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau.

Á næstu fimm árum frá og með árinu 2007 mun sjóðurinn hafa um 20 m.kr. á ári til úthlutunar styrkja. Úthlutunum úr sjóðnum lýkur að þeim tíma liðnum, þ.e. árið 2011 og er þá reiknað með að sjóðurinn hafi þegar úthlutað öllu fé sínu í samræmi við tilgang hans.

Umsóknir

Gerðar eru skýrar faglegar og fræðilegar kröfur til umsækjenda. Forgang hafa verkefni sem undirbúin hafa verið svo að vinna við þau geti hafist innan árs frá úthlutun.

Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum. Þau má finna á vefsíðu Seðlabanka Íslands www.sedlabanki.is (sjá Seðlabanki Íslands - Þjóðhátíðarsjóður). Enn fremur má nálgast eyðublöð í afgreiðslu Seðlabankans, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík.

Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2007 og verður úthlutað úr sjóðnum í ofanverðum maí 2007. Umsóknir skal senda Þjóðhátíðarsjóði, Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir ritari sjóðsins í síma 569 9622 eða netfanginu: [email protected].

Stjórn Þjóðhátíðarsjóðs



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum