Hoppa yfir valmynd
30. janúar 2007 Forsætisráðuneytið

Opinber heimsókn lögmanns Færeyja

Jóannes Eidesgaard, lögmaður Færeyja, kemur í opinbera heimsókn til Íslands dagana 31. janúar til 2. febrúar n.k. í boði Geirs H. Haarde, forsætisráðherra. Í för með lögmanninum verða embættismenn og fjölmenn viðskiptasendinefnd. Á meðan á heimsókninni stendur mun hann m.a. eiga fundi með forsætisráðherra og Valgerði Sverrisdóttur, utanríkisráðherra, opna færeyska viðskiptaráðstefnu og heimsækja stofnanir og fyrirtæki.

Reykjavík 30. janúar 2007



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum