Hoppa yfir valmynd
6. mars 2007 Forsætisráðuneytið

Blaðamannafundur í tilefni af opnun forsætisráðherra á þjónustuveitunni Ísland.is

Forsætisráðuneytið boðar til blaðamannafundar í Þjóðarbókhlöðu, miðvikudaginn 7. mars kl. 15:00. Á fundinum mun forsætisráðherra, Geir H. Haarde, opna þjónustuveituna Ísland.is.

Ísland.is er samstarfsverkefni ríkisstofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga og er eitt mikilvægasta verkefnið í stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið fyrir árin 2004 – 2007, Auðlindir í allra þágu.

Reykjavík 6. mars 2007



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum