Hoppa yfir valmynd
8. mars 2007 Forsætisráðuneytið

Frumvarp til stjórnarskipunarlaga um auðlindaákvæði

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 23. maí 2003 segir að setja skuli ákvæði í stjórnarskrá þess efnis að auðlindir sjávar séu sameign íslensku þjóðarinnar. Í ljósi þess að stjórnarskrárnefnd sem starfað hefur undanfarin tvö ár náði ekki samkomulagi um slíkt ákvæði hafa formenn ríkisstjórnarflokkanna rætt sín á milli um lausn málsins. Hafa þeir orðið sammála um að flytja meðfylgjandi frumvarp til stjórnarskipunarlaga. Þar kemur fram kjarninn í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar en jafnframt er ákvæðið látið ná til allra náttúruauðlinda Íslands. Áréttað er að réttinda einstaklinga og lögaðila sem njóta eignarréttarverndar 72. gr. stjórnarskrárinnar skuli gætt. Því er lýst yfir að náttúruauðlindir Íslands skuli nýta til hagsbóta fyrir þjóðina alla, sem standi því samt ekki í vegi að veita megi einkaaðilum heimildir til afnota eða hagnýtingar á sameiginlegum auðlindum. Eðli málsins samkvæmt eru slíkar heimildir afturkræfar og fela ekki í sér fullnaðarafsal, þótt í þeim geti falist óbein eignarréttindi.

Ákvæðið tekur með gagnorðum hætti á flóknum lögfræðilegum álitaefnum. Þegar mælt hefur verið fyrir frumvarpinu mun það ganga til sérnefndar Alþingis um stjórnarskrármálefni til umfjöllunar.

Frumvarp til stjórnarskipunarlaga um auðlindaákvæði (pdf 255 KB)

Reykjavík 8. mars 2007



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum