Hoppa yfir valmynd
28. mars 2007 Forsætisráðuneytið

Úthlutun úr sjóðnum Þjóðhátíðargjöf Norðmanna 2007

Úthlutað hefur verið styrkjum þessa árs úr sjóðnum Þjóðhátíðargjöf Norðmanna. Norska Stórþingið samþykkti í tilefni ellefu alda afmælis Íslandsbyggðar 1974 að færa Íslendingum eina milljón norskra króna að gjöf í ferðasjóð. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins skal ráðstöfunarfénu, vaxtatekjum af höfuðstól, varið til að styrkja hópferðir Íslendinga til Noregs.

Styrkir voru fyrst veittir úr sjóðnum 1976 og fór nú fram þrítugasta úthlutun. Ráðstöfunarfé sjóðsins var að þessu sinni um 900 þúsund krónur. Styrkumsóknir voru 9, en samþykkt var að styrkja eftirtalda aðila: vegaHÚSIÐ - Menningarmiðstöð ungs fólks á Austurlandi, Tónskólann í Hólmavík, 7. bekk Grunnskólans í Sandgerði og Hlutverk – samtök um vinnu- og verkþjálfun.

 

                                                                                                Reykjavík 28. mars 2007.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum