Hoppa yfir valmynd
4. júní 2007 Forsætisráðuneytið

Styrkveitingar Þjóðhátíðarsjóðs 2007

Lokið er úthlutun styrkja úr Þjóðhátíðarsjóði fyrir árið 2007 og þar með þrítugustu úthlutun úr sjóðnum.

Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf. Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlög til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau.

Í stjórn sjóðsins sitja nú:

Margrét Bóasdóttir, söngkona, formaður skipuð af forsætisráðherra.

Eiríkur Guðnason, seðlabankastjóri, varaformaður, tilnefndur af Seðlabanka Íslands.

Jónína Michaelsdóttir, rithöfundur,

Margrét K. Sverrisdóttir, varaborgarfulltrúi og

Björn Teitsson, magister, sem kjörin eru af Alþingi.

Ritari sjóðsstjórnar er Sigfús Gauti Þórðarson, lögfræðingur.

Alls bárust 150 umsóknir um styrki að fjárhæð um 168,3 millj. kr. Úthlutað var að þessu sinni 46 styrkjum að fjárhæð samtals kr. 20.600.000.- og hlutu eftirtaldir aðilar hæstu styrkina, kr. 1.000.000 hver:

1.      Sjómannasafnið á Hellissandi – vegna bátahúss og viðgerðar áttæringa.

2.      Saga forlag ehf. – útgáfa Íslendingasagna á Norðurlandamálum.

3.      Árnastofnun – gagnagrunnur um þjóðlög Bjarna Þorsteinssonar.

4.      Námsefnisvefurinn Katla sf. – námsefni til að auka orðaforða ungra innflytjenda.

5.      Háskólinn á Hólum – áframhald fornleifarannsókna við Kolkuós.

Sérstök úthlutunarathöfn verður í Þjóðmenningarhúsinu af þessu tilefni, kl. 17.00 í dag.

Nánari upplýsingar um Þjóðhátíðarsjóð má m.a. sjá á vefslóðinni: http://www.sedlabanki.is/?PageID=28

 

Úthlutun styrkja úr Þjóðhátíðarsjóði fyrir árið 2007 er sem hér segir:

Stofnun Árna Magnússonar Vésteinn Ólason

Árnagarði við Suðurgötu

101 Reykjavík

 

Að greiða kostnað við viðgerð fyrra bindis Flateyjarbókar.

400.000

Gamli kirkjugarðurinn                

á Svalbarði                                   

601 Svalbarðsströnd

 

Gamli kirkjugarðurinn á Svalbarði.                                  

300.000

Sögusetur íslenska hestsins

Anna Björg Bjarnadóttir

Hólum í Hjaltadal

551 Sauðárkrókur

 

Að skrá ýmsar heimildir um íslenska hestinn.

500.000

Náttúrurannsóknastöðin v/Mývatn                                   

Árni Einarsson                           

Skútustöðum

660 Mývatn

 

Að kortleggja og flokka loftmyndir af garðlögum í S-Þingeyjarsýslu.

300.000

Finnbogi Jónsson

Hraunbæ 174

110 Reykjavík

 

Söfnun sagnfræðiheimilda í Austur-Barðastrandasýslu, aðallega í Múlahreppi.

100.000

 

Sigurjón Gunnarsson

Fannafold 235

112 Reykjavík

 

Að gera handbók um tréskurð.

300.000

Blindrabókasafn Íslands

Helga Ólafsdóttir

Digranesvegi 5

200 Kópavogur

 

Innlestur Heimskringlu á hljóðbók auk hluta lykilbókar.

400.000

Fornleifastofnun Íslands

Gavin Lucas

Bárugötu 3      

101 Reykjavík

 

Að gera handbók um íslenska forngripi frá 16.- 19. öld.

500.000

Byggðasafn Skagfirðinga

Sigríður Sigurðardóttir

Glaumbæ

560 Skagafjörður

 

Að ljúka ritun sögu staðar og kirkju í Glaumbæ á Langholti í Skagafirði.

300.000



Alþýðusamband Vestfjarða

Helgi S. Ólafsson ritari

Pólgötu 2

400 Ísafjörður

 

Að rita sögu verkalýðs-hreyfingarinnar á Vestfjörðum

1906 – 2006.

500.000

Edinborgarhúsið ehf.

Jón Sigurpálsson form.

Aðalstræti 7

400 Ísafjörður

 

Að endurvekja upplýsinga-bæklinginn Mannsmál vegna opnunar Edinborgarhússins.

350.000

Þorsteinn Geirsson

Bugðuleiru 3

780 Höfn

 

Að gefa út bók um mikilvæga þætti félagsstarfs í Lóni, A-Skaftafells-sýslu.

200.000

Árni Daníel Júlíusson

Hringbraut  37 

107 Reykjavík

 

Að rita tvö af fjórum bindum Landbúnaðarsögu Íslands.

500.000

Saga forlag ehf.

Jóhann Sigurðsson

Flókagötu 65

105 Reykjavík

 

Að gefa út samræmda heildarútgáfu Íslendingasagna á dönsku, norsku og sænsku.

1.000.000

Hugrún Ívarsdóttir

Strandgötu 43

600 Akureyri   

 

Að rita bók á fjórum tungumálum um mynsturgerð í íslenskri matargerð.

75.000

Stofnun Árna Magnússonar

Rósa Þorsteinsdóttir

Árnagarði við Suðurgötu

101 Reykjavík

 

Að gera gagnagrunn um þjóðlagasafn séra Bjarna Þorsteinssonar.

1.000.000

Námsefnisvefurinn Katla sf.    

Anna Guðrún Júlíusdóttir         

Hagamel 40    

107 Reykjavík                          

 

Að gefa út námsefni til að auka orðaforða ungra innflytjenda á Íslandi í grunn- og framhaldsskóla.

1.000.000

Strandagaldur ses                    

Höfðagötu 8                             

510 Hólmavík

 

Að gefa út þrjár galdrabækur fyrri alda.

500.000



Fornleifastofnun Íslands

Orri Vésteinsson

Bárugötu 3

101 Reykjavík

 

Að gefa út rit ætluðu almenningi, nemendum og fræðimönnum um nýjar rannsóknir í íslenskri fornleifafræði.

700.000

Arnfirðingafélagið

Sigríður Arnardóttir Langeyrarvegi 11

220 Hafnarfirði

 

Að rannsaka og kynna heiðinn kumlateig í Hringsdal í Arnarfirði.

600.000

Geir Waage f.h. Reykholtskirkju

320 Reykholt

 

Að greina ástand, lagfæra og forverja gamla legsteina í Reykholti.

600.000

Skriðuklaustursrannsóknir Steinunn Kristjánsdóttir

Skriðuklaustri í Fljótsdal

701 Egilsstaðir

 

Að rannsaka leifar af skinnbókum frá Skriðuklaustri í Fljótsdal.

600.000

Sveitarfélagið Vogar           

Róbert Ragnarsson              

Iðndal 2 

190 Vogar

                  

Að gera vettvangsskráningu minja sem eru í hættu vegna sjávarrofs í Vogum.

200.000

Háskólinn á Hólum            

Ragnheiður Traustadóttir

Krókamýri 78  

210 Garðabær

 

Að halda áfram fornleifa-rannsókninni á Kolkuósi sem virðist hafa verið lykill að þróun valdamiðstöðvar og síðar biskupsstóls á Hólum.

1.000.000

Kirkjubæjarstofa ses

Ólafía Jakobsdóttir                 

Klausturvegi 2 

880 Kirkjubæjarklaustur

 

Að ganga frá uppgraftarsvæði á Kirkjubæjarklaustri og gera hluta rústanna að eins konar fornleifagarði.

500.000

Byggðasafn Vestfjarða         

Jón Sigurpálsson

Turnhúsinu

400 Ísafjörður

og

Fornleifastofnun Íslands       

Guðrún Alda Gísladóttir

Bárugötu 3

101 Reykjavík

 

Að halda áfram rannsóknum á bæjarstæðinu á Eyri við Skutulsfjörð.

600.000



Bæjar- og héraðsbókasafnið á Selfossi

Margrét I. Ásgeirsdóttir

Austurvegi 2

800 Selfoss

 

Yfirfærsla á myndefni heimildar-mynda um Selfoss og Ölfusárbrú.

75.000

Byggðasafn Árnesinga

Lýður Pálsson

Húsinu

820 Eyrarbakki

 

Að gera heimildarmynd um Húsið á Eyrarbakka.

300.000

Hótel Djúpavík ehf.      

Eva Sigurbjörnsdóttir

522 Kjörvogur

 

Stækkun sögusýningar Djúpavíkur sem opnuð var árið 2003.

300.000

 

Eyjafjarðarsveit

Syðra – Laugalandi

601 Akureyri

 

Að halda handverkshátíðina „Uppskera og Handverk“ í ágúst 2007.

300.000

Gásahópur

Guðrún Steingrímsdóttir

Stekkjarflötum

601 Akureyri

 

Að byggja upp miðaldaþorp á Gásum í Eyjafirði.

300.000

Minjasafn Reykjavíkur

Guðný G. Gunnarsdóttir

Árbæjarsafni við Kistuhyl

110 Reykjavík

 

Að setja upp sýningu um forvörslu fornleifa frá landnámstíð í Aðalstræti.

500.000

Hannes Lárusson og

Kristín Magnúsdóttir         

Skólavörðustíg 4b                   

101 Reykjavík                         

 

Að stofna kennslu- og menningarmiðstöð með sýningarskála í tengslum við torfbæinn að A-Meðalholtum í Gaulverjabæjarhreppi í Flóa.

600.000

Heimilisiðnaðarfélag Íslands

Ásdís Birgisdóttir   

Laufásvegi 2    

101 Reykjavík

 

Að halda sýningu til kynningar rannsóknum á íslenska faldbúningnum.

300.000

Deild íslenska fjárhundsins

Þorsteinn Thorsteinson

Brún

845 Flúðir

 

Að framkvæma augnskoðun á allt að 100 íslenskum fjárhundum.

300.000

Menningarmiðstöð Hornafjarðar

Héraðsskjalasafnið á Höfn

Björg Erlingsdóttir

Litlubrú 2

780 Höfn

 

Að vinna úr upptökum af frásögum, söngvum og viðtölum við einstaklinga úr A-Skaftafellssýslu.

400.000

Fornverkaskólinn

Guðrún Þóra Gunnarsdóttir

Hólum í Hjaltadal

551 Sauðárkrókur

 

Að halda námskeið í torftöku og torfhleðslu.

200.000

Starfshópur um verkefnið

„Á slóð Vatnsdælasögu”

Haukur Suska-Garðarsson

Þverbraut 1     

540 Blönduós

 

Að gera sögukort fyrir svæðið Vatnsdal og Þing í Austur-Húnavatnssýslu.

 

250.000

Skálholtsstaður

Hólmfríður Ingólfsdóttir         

Skálholti

801 Selfoss     

Að gera fræðsluskilti á hlaðinu við Skálholtsdómkirkju og að hanna og prenta bækling.

400.000



Alls 20.600.000 kr.

Reykjavík, 24. maí 2007



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum