Hoppa yfir valmynd
17. júní 2007 Forsætisráðuneytið

Skipun nefndar til að undirbúa 200 ára afmæli Jóns Sigurðssonar

Forsætisráðherra skipaði í dag nefnd til að undirbúa hvernig minnast eigi þess að 17. júní 2011 verða liðin 200 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar forseta.

Nefndinni er ætlað að gera fyrstu tillögur eigi síðar en í árslok 2008 en vinna síðan að undirbúningi hátíðarhalda á árinu 2011. Nefndin leiti enn fremur eftir tillögum frá stofnunum og samtökum sem tengjast minningu Jóns Sigurðssonar forseta.

Sólveig Pétursdóttir fv. forseti Alþingis verður formaður nefndarinnar. Aðrir nefndarmenn eru Anna Agnarsdóttir sagnfræðingur, Sigurður Pétursson sagnfræðingur, Gunnlaugur Haraldsson þjóðháttafræðingur, Sigrún Magnúsdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi, Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður, Karl M. Kristjánsson aðstoðarskrifstofustjóri Alþingis og Eiríkur Finnur Greipsson formaður Hrafnseyrarnefndar. Með nefndinni starfar Halldór Árnason skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu.

Reykjavík 17. júní 2007



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum