Hoppa yfir valmynd
3. júlí 2007 Forsætisráðuneytið

Samráðsvettvangur ríkisins, aðila vinnumarkaðarins og sveitarfélaga um efnahagsmál og málefni Íbúðalánasjóðs

Frá forsætisráðherra og utanríkisráðherra

Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar hefur verið ákveðið að setja á laggirnar formlegan samráðsvettvang ríkisins, Samtaka atvinnulífsins, Alþýðusambands Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga, BSRB og BHM þar sem fjallað verður um aðgerðir og langtímamarkmið á sviði efnahags-, atvinnu- og félagsmála. Forsætisráðherra stýrir samráðsfundunum en auk hans sitja fundina utanríkisráðherra, fjármálaráðherra og félagsmálaráðherra. Aðrir ráðherrar koma að samráðinu eftir því sem tilefni er til. Fyrsti fundur hefur verið boðaður nk. fimmtudag.

Frá félagsmálaráðherra

Að undanförnu hefur fasteignaverð farið hækkandi á nýjan leik. Þetta hefur stuðlað að meiri verðbólgu og hærra vaxtastigi en ella sem mikilvægt er að bregðast við. Af þessu tilefni hefur verið ákveðið að lækka lánshlutfall Íbúðalánasjóðs úr 90% í 80% frá og með 4. júlí.

Jafnframt hefur verið ákveðið að vinna að því að efla hinn félagslega þátt húsnæðislánakerfisins, þar með talið leigumarkaðinn og með lánveitingum til fólks undir skilgreindum eigna- og tekjumörkum, samhliða því að skýrar verði skilið á milli almennra og félagslegra lánveitinga. Félagsmálaráðherra mun skipa nefnd sem falið verður að vinna að þessu verkefni og verður frumvarp um það efni lagt fram á komandi þingi.

 

Reykjavík 3. júlí 2007



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum