Hoppa yfir valmynd
13. september 2007 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra fundaði með forseta Írlands í dag

Forsætisráðherra, Geir H. Haarde, átti í dag fund með forseta Írlands, frú Mary McAleese. Einnig átti ráðherra fund með Micheál Martin, ráðherra iðnaðar-, viðskipta- og vinnumarkaðsmála, þar sem rætt var um stöðu efnahags- og atvinnumála í löndunum tveimur og þær miklu og jákvæðu breytingar sem orðið hafa á því sviði á undanförnum 10-15 árum. Loks fór forsætisráðherra í heimsókn til fjármálafyrirtækisins Merrion Capital Group sem Landsbankinn festi kaup á fyrir tæplega tveimur árum og átti þar fund með bankastjórum Landsbankans og ýmsum stjórnendum Merrion Capital Group. Í kvöld er móttaka til heiðurs forsætisráðherra í Þjóðminjasafni Írlands.

 

                                                                                                    Reykjavík 13. september 2007

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum