Hoppa yfir valmynd
23. október 2007 Forsætisráðuneytið

Úthlutun styrkja úr Jafnréttissjóði fyrir árið 2007

Jafnréttissjóður veitir á morgun 5 styrki til rannsókna á sviði jafnréttismála og kynnir verkefni sem fengu styrk á síðasta ári. Afhendingin fer fram kl. 15-19 á Hilton Reykjavík Nordica (áður Nordica) 2. hæð. Forsætisráðherra afhendir styrkina.

Jafnréttissjóður:

Árið 2005 samþykkti ríkisstjórn Íslands að stofna sérstakan rannsóknarsjóð, Jafnréttissjóð, sem ætlað er að veita fé til rannsókna á á stöðu kvenna og karla á vinnumarkaði. Til rannsókna í þessu sambandi teljast m.a. rannsóknir á stöðu kynjanna á vinnumarkaði og enn fremur rannsóknir á áhrifum gildandi löggjafar, svo sem ákvæða laga um fæðingar- og foreldraorlof og um sjálfstæðan rétt feðra til fæðingarorlofs. Sérstaklega er horft til þátttöku ungra vísindamanna í þessum rannsóknarverkefnum.

Markmið með stofnun Jafnréttissjóðs er að tryggja að hér á landi verði unnar vandaðar rannsóknir á stöðu kynjanna á vinnumarkaði en slíkar rannsóknir geta verið lykill að bættri stöðu kvenna og karla og flýtt fyrir framgangi jafnréttis. Sjóðurinn starfar skv. reglum um úthlutun styrkja Jafnréttissjóðs nr. 513/2006.

Að þessu sinni bárust 13 umsóknir og í ár fá 5 verkefni styrk samtals að upphæð 9.0 milljónum króna og mun forsætisráðherra afhenda styrkina á morgun 24. október. Enn fremur verða niðurstöður verkefna eða staða þeirra sem fengu styrk á síðasta ári kynnt.

Jafnréttissjóður er vistaður í forsætisráðuneyti og skipar forsætisráðherra formann sjóðsins sem er Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, lektor í mannauðsstjórnun við viðskiptadeild Háskóla Íslands. Aðrir í stjórn sjóðsins eru Aðalheiður Inga Þorsteinsdóttir, sagnfræðingur, tilnefnd af menntamálaráðherra. Hildur Jónsdóttir, formaður jafnréttisráðs, tilnefnd af félagsmálaráðherra. Varamenn eru Fjóla Agnarsdóttir, hagfræðingur, Bolli Thoroddsen, verkfræðingur og Ingi Valur Jóhannsson, deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu.

Dagskrá:

Kl. 15:00-16:20

Forsætisráðherra afhendir styrki Jafnréttissjóðs fyrir árið 2007

Kynntar verða niðurstöður og framgangur verkefna sem fengu styrk árið 2006.

  • Félagsleg áhrif launavæntingar kynjanna. Styrkþegi og verkefnisstjóri Haukur Freyr Gylfason
  • Kynbundið starfsval og gildi – samband launa, viðurkenningar og verðleika. Styrkþegi og verkefnisstjóri er Agnes Sigtryggsdóttir
  • Reynsla af fæðingarorlofi og samspili vinnu og einkalífs frá sjónarhóli feðra og maka þeirra. Styrkþegi og verkefnisstjóri er Auður Arna Arnardóttir
  • Óútskýrður launamunur kynjanna. Styrkþegi og verkefnisstjóri er Þorlákur Karlsson
  • Umönnun og atvinnuþátttaka foreldra barna 3 ára og yngri – Hvaða áhrif hafa lög um fæðingar- og foreldraorlof haft? Styrkþegi og verkefnisstjóri er Guðný Björk Eydal

Kl. 16:20-17:00 Jafnréttisviðurkenning 2007

Félagsmálaráðherra afhendir Jafnréttisviðurkenningu ársins 2007.

Kl. 17:00- Léttar veitingar

Allar nánari upplýsingar veitir: Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, formaður Jafnréttissjóðs.

Reykjavík 23. október 2007

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum