Hoppa yfir valmynd
31. október 2007 Forsætisráðuneytið

Samstarfsráðherra situr fund norrænna samstarfsráðherra og sækir þing Norðurlandaráðs

Össur Skarphéðinsson samstarfsráðherra mun á morgun, 1. nóvember, sitja fund norrænna samstarfsráðherra sem haldinn er í tengslum við 59. þing Norðurlandaráðs í Ósló. Síðar í dag mun samstarfsráðherra einnig sitja fund með forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins ásamt samstarfsráðherrum Færeyja og Grænlands. Ráðherra mun jafnframt taka þátt í þingi Norðurlandaráðs sem er haldið dagana 30. október – 1. nóvember.

Nánari upplýsingar um fundi samstarfsráðherra veitir Einar Karl Haraldsson í síma 6922070



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum