Hoppa yfir valmynd
31. október 2007 Forsætisráðuneytið

Breytingar á skipan í úrskurðarnefnd um upplýsingamál

Friðgeir Björnsson fyrrverandi dómsstjóri hefur verið skipaður sem formaður úrskurðarnefndar um upplýsingamál í stað Páls Hreinssonar sem sagði sig úr nefndinni þegar hann var skipaður hæstaréttardómari fyrr í haust. Trausti Fannar Valsson lögfræðingur hefur verið skipaður í nefndina og tekur sæti Friðgeirs sem varaformaður.

Reykjavík 31. október 2007



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum