Hoppa yfir valmynd
2. nóvember 2007 Forsætisráðuneytið

Handbók um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa

Í samræmi við aðgerðaáætlun um Einfaldara Ísland hefur verið tekin saman á vegum ráðuneytanna og skrifstofu Alþingis handbók um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa. Þar er safnað saman á einn stað þeim viðmiðum sem telja má að gildi um framsetningu stjórnarfrumvarpa og athugasemda með þeim.

Jafnramt eru settar fram leiðbeiningar um hvernig standa eigi að undirbúningi frumvarpa í ráðuneytum, meðal annars að því er varðar samráð og mat á áhrifum. Handbókin er nú aðgengileg sem pdf-skjal en í undirbúningi er útgáfa í handhægu broti.

 

                                                                                                     Reykjavík 2. nóvember 2007



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum