Hoppa yfir valmynd
13. desember 2007 Forsætisráðuneytið

Styrkveitingar Þjóðhátíðarsjóðs vegna ársins 2008

Lokið er úthlutun styrkja úr Þjóðhátíðarsjóði vegna ársins 2008 og þar með þrítugustu og fyrstu úthlutun úr sjóðnum.

Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf. Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlög til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau.

Í stjórn sjóðsins sitja nú:
Margrét Bóasdóttir, söngkona, formaður skipuð af forsætisráðherra.
Eiríkur Guðnason, seðlabankastjóri, varaformaður, tilnefndur af Seðlabanka Íslands.
Jónína Michaelsdóttir, rithöfundur,
Margrét K. Sverrisdóttir, borgarfulltrúi og
Björn Teitsson, magister, sem kjörin eru af Alþingi.
Ritari sjóðsstjórnar er Sigfús Gauti Þórðarson, lögfræðingur.


Úthlutun styrkja úr þjóðhátíðarsjóði vegna ársins 2008

Reykjavík 13. desember 2007



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum