Hoppa yfir valmynd
16. apríl 2008 Forsætisráðuneytið

Fundur Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, og Stephen Harper, forsætisráðherra Kanada, á morgun

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, mun eiga fund með Stephen Harper, forsætisráðherra Kanada, í Ottawa nk. fimmtudag í boði þess síðarnefnda. Þar ræða þeir tvíhliða samskipti ríkjanna og þátttöku þeirra í svæðisbundnu og alþjóðlegu samstarfi. Forsætisráðherra mun nota tækifærið til að funda með þingmönnum og Íslendingum búsettum í Ottawa auk þess að ræða við fjölmiðla.

                                                                                                             Reykjavík 16. apríl 2008



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum