Hoppa yfir valmynd
6. maí 2008 Forsætisráðuneytið

Nýtt erindisbréf nefndar sem kannar starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn

Nefnd samkvæmt lögum nr. 26/2007 var upphaflega skipuð af forsætisráðherra með erindisbréfi, dags. 2. apríl 2007. Nefndina skipa Róbert R. Spanó prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, formaður, Dr. Jón Friðrik Sigurðsson, dósent við læknadeild Háskóla Íslands og forstöðusálfræðingur á Landspítalanum, Dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og Dr. Ragnhildur Bjarnadóttir, dósent í sálfræði við Kennaraháskóla Íslands. Framkvæmdastjóri nefndarinnar er Þuríður B. Sigurjónsdóttir lögfræðingur.

Samkvæmt erindisbréfi, dags. 2. apríl 2007, var nefndinni í fyrstu falið að kanna starfsemi vistheimilisins Breiðavíkur á árunum 1950-1980. Skýrsla um þá könnun er dagsett 31. janúar 2008. Hún var afhent forsætisráðherra, lögð fram á Alþingi og rædd á þingfundi 31. mars sl.

Í skýrslu nefndarinnar um Breiðavíkurheimilið voru meðal annars settar fram tillögur um framhald á könnunum nefndarinnar. Á þeim grundvelli hefur forsætisráðherra nú afhent nefndinni nýtt erindisbréf, dags. 11. apríl s.l., þar sem kveðið er á um framhald á störfum hennar. Er nefndinni nú falið að taka með almennum hætti afstöðu til þess hvaða stofnanir falla undir gildissvið laga nr. 26/2007 og afmarka nánar, ef ástæða þykir til, það tímabil sem nefndin beinir almennt sjónum sínum að, m.a. í ljósi gildandi barnaverndarlöggjafar á hverjum tíma. Þá ber nefndinni að leggja mat á hvort og þá hvaða stofnanir skuli kanna sérstaklega með þeim hætti sem kveðið er á um í lögum nr. 26/2007. Við slíkt mat skal nefndin hafa til hliðsjónar hvort tilefni sé til könnunar í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga, t.d. í formi frumgagna eða frásagna, sem fram hafa komið frá fyrrverandi vistmönnum, starfsmönnum eða öðrum. Eins ber nefndinni að líta til þess hversu líklegt sé að könnun þjóni tilgangi sínum, m.a. vegna þess hversu langt sé um liðið.

Nefndin skal skila áfangaskýrslum um könnunina til forsætisráðherra eigi síðar en 1. júlí 2009 og 1. júlí 2010. Nefndin skal síðan ljúka störfum sínum og skila lokaskýrslu um könnun sína til forsætisráðherra eigi síðar en 15. apríl 2011. Samkvæmt erindisbréfinu ákveður nefndin hvort fjallað verði um einstakar stofnanir sameiginlega eða hverja um sig og þá hvort umfjöllun komi fram í áfangaskýrslum eða í heildarskýrslu nefndarinnar við lok starfa hennar.

Hér með er upplýst að á fundi nefndarinnar, dags. 29. apríl 2008, var tekin sú ákvörðun að neðangreindar stofnanir skyldu í fyrstu sæta könnun nefndarinnar samkvæmt lögum nr. 26/2007. Gert er ráð fyrir því að í fyrstu verði aflað tiltækra gagna í vörslum stjórnvalda um starfsemi þessara stofnana. Í framhaldinu mun nefndin taka ákvarðanir um frekari aðgerðir til upplýsingaöflunar, meðal annars í formi munnlegra framburða.

Vistheimilið Kumbaravogur
Vistheimilið Knarrarvogur
Heyrnleysingjaskólinn
Stúlknaheimilið Bjarg
Vistheimilið Reykjahlíð
Heimavistarskólinn Jaðar
Upptökuheimili ríkisins / Unglingaheimili ríkisins
Uppeldisheimilið Silungapollur

Nefndin hefur á þessu stigi ekki ákveðið hvort fjallað verði um ofangreindar stofnanir sameiginlega eða hverja um sig í áfangaskýrslum eða í heildarskýrslu nefndarinnar.


Reykjavík, 5. maí 2008,
f.h. nefndar skv. lögum nr. 26/2007,
Róbert R. Spanó, formaður.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum