Hoppa yfir valmynd
29. júní 2008 Forsætisráðuneytið

Jafnréttissjóður

JafnréttissjóðurStarfræktur er sérstakur rannsóknarsjóður, Jafnréttissjóður, og er tilgangur hans að efla kynjarannsóknir og stuðla þannig að bættri stöðu kvenna og karla og framgangi jafnréttis.

Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki úr Jafnréttissjóði. Í samræmi við hlutverk sjóðsins verða veittir styrkir til rannsókna sem tengjast jafnréttismálum.

Gert er ráð fyrir að sjóðurinn hafi 10 milljónir króna til ráðstöfunar fyrir hvert starfsár og að styrkir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm.

Gerðar eru skýrar faglegar og fræðilegar kröfur til umsækjenda. Ekki verða veittir styrkir til verkefna sem þegar er lokið.

Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum. Þau má finna hér á vef forsætisráðuneytis. Umsóknarfrestur er til 1. september 2008 og verður úthlutað úr sjóðnum á degi Sameinuðu þjóðanna, 24. október 2008.

Jafréttissjóður starfar samkvæmt reglum nr. 513/2006, um úthlutun styrkja Jafnréttissjóðs.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum