Hoppa yfir valmynd
26. júní 2008 Forsætisráðuneytið

Þjóðhátíðarsjóður

ÞjóðhátíðarsjóðurÞjóðhátíðarsjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna ársins 2009.

Þjóðhátíðarsjóður, sem starfar samkvæmt skipulagsskrá nr. 361 frá 30. september 1977 með áorðnum breytingum, var stofnaður í tilefni af 1100 ára búsetu á Íslandi 1974.
Tilgangur sjóðsins er:

að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf.

Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlög til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau.

Á næstu þremur árum frá og með árinu 2008 mun sjóðurinn hafa um 30 m.kr. á ári til úthlutunar styrkja. Úthlutunum úr sjóðnum lýkur að þeim tíma liðnum, þ.e. 2010 vegna ársins 2011 og er þá reiknað með að sjóðurinn hafi þegar úthlutað öllu fé sínu í samræmi við tilgang hans.


Umsóknir

Gerðar eru skýrar faglegar kröfur til umsækjenda.

Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum. Þau má finna á vefsíðu Seðlabanka Íslands http://www.sedlabanki.is/?PageID=28. Enn fremur má nálgast eyðublöð í afgreiðslu Seðlabankans, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík.

Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2008 og er stefnt að því að úthlutað verði úr sjóðnum 1. desember 2008 með athöfn í Þjóðmenningarhúsinu. Umsóknir skal senda Þjóðhátíðarsjóði, Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík.

Nánari upplýsingar veitir ritari sjóðsins í síma 569 9622 eða
netfanginu: [email protected].

Stjórn Þjóðhátíðarsjóðs



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum