Hoppa yfir valmynd
4. júlí 2008 Forsætisráðuneytið

Starfshópur um endurreisnarstarf vegna jarðskjálftanna á Suðurlandi 29. maí s.l.

Ríkisstjórnin hefur ákveðið, að tillögu forsætisráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra, að setja á laggirnar starfshóp ráðuneyta sem ætlað er að vinna náið með fulltrúum sveitarstjórna á jarðskjálftasvæðunum á Suðurlandi við að meta hvernig fara skuli með ótryggð tjón einstaklinga og fyrirtækja svo og hvernig haga skuli fjárhagslegum stuðningi við sveitarfélög, m.a. vegna endurreisnarstarfsins. Reynslan frá árinu 2000 mun verða höfð að leiðarljósi við þessa vinnu. Ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins stýrir starfshópi ráðuneytanna en auk þess sitja í honum fulltrúar dóms- og kirkjumálaráðuneytis, félags- og tryggingamálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis, samgönguráðuneytis, umhverfisráðuneytis, viðskiptaráðuneytis og fjármálaráðuneytis.

Reykjavík 4. júlí 2008



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum