Hoppa yfir valmynd
17. október 2008 Forsætisráðuneytið

Ásmundur Stefánsson til starfa fyrir forsætisráðherra

Á síðustu vikum hefur áfallið á fjármálamarkaði kallað á fjölþætt viðbrögð jafnt á vettvangi ríkisstjórnarinnar sem hinna ýmsu stofnana samfélagsins.

Til að treysta yfirsýn og tryggja betur tengsl forsætisráðherra og ríkisstjórnarinnar og bæta samhæfingu þeirra mörgu sem að starfinu koma, hefur forsætisráðherra falið Ásmundi Stefánssyni, ríkissáttasemjara, að hafa yfirumsjón með þeim margvíslegu starfshópum sem nú starfa og vera tengiliður á milli þeirra innbyrðis og gagnvart forsætisráðherra og ríkisstjórn.

Reykjavík 17. október 2008



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum