Hoppa yfir valmynd
22. október 2008 Forsætisráðuneytið

Úthlutun styrkja úr Jafnréttissjóði og jafnréttisviðurkenning Jafnréttisráðs

Jafnréttissjóður og Jafnréttisráð efna til sameiginlegrar athafnar föstudaginn 24. október nk. kl. 15 í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, þar sem veittir verða fimm styrkir til rannsókna á sviði jafnréttismála og jafnréttisviðurkenning Jafnréttisráðs verður afhent. Við sama tækifæri verða rannsóknarniðurstöður fimm styrkþega ársins 2007 kynntar.

Árið 2005 samþykkti ríkisstjórn Íslands að stofna sérstakan rannsóknarsjóð, Jafnréttissjóð, sem ætlað er að veita fé til rannsókna á stöðu kvenna og karla á vinnumarkaði. Markmiðið með stofnun sjóðsins er að tryggja að hér á landi verði unnar vandaðar rannsóknir á stöðu kynjanna á vinnumarkaði en slíkar rannsóknir geta verið lykill að bættri stöðu kvenna og karla og flýtt fyrir framgangi jafnréttis. Sérstaklega er horft til þátttöku ungra vísindamanna í þessum rannsóknarverkefnum. Sjóðurinn starfar samkvæmt reglum nr. 513/2006. Að þessu sinni bárust 10 umsóknir. Í ár hljóta fimm verkefni styrk samtals að upphæð níu milljónum króna.

Að dagskrá Jafnréttissjóðs lokinni mun afhending á jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs fara fram. Greinargerð um val ráðsins verður þá afhent fjölmiðlum.

Dagskrá:

Kl. 15:00 Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, formaður stjórnar Jafnréttissjóðs, afhendir styrki Jafnréttissjóðs fyrir árið 2008.

Kl. 15:15 Styrkþegar síðasta árs kynna rannsóknarniðurstöður og framgang verkefna:

1. Indriði H. Indriðason: Fjöldi kvenna á þingi – framboð eða eftirspurn. Markmið rannsóknarinnar er að leggja mat á skýringar á litlum hlut kvenna á alþingi Íslendinga. Rannsóknin felur í sér að skýra árangur kvenna í prófkjörum stjórnmálaflokkanna að teknu tilliti til reynslu, flokksstarfs, aldurs, menntunar, fjölda kvenna og karla í framboði auk annarra hugsanlegra skýribreyta.

2. Þorgerður H. Þorvaldsdóttir: Jafnréttisumræða á tímamótum – kyn og margbreytileiki. Markmið rannsóknarinnar er að fá heildstæða þekkingu á íslenskri jafnréttisumræðu og þróa jafnréttishugtak þar sem margbreytileikinn er hafður að leiðarljósi – án þess að áhersla á kynjajafnrétti sé gefinn upp á bátinn.

3. Kolbeinn Stefánsson: Vinna foreldra á heimili og vinnumarkaði – alþjóðlegur samanburður. Markmið rannsóknarinnar er að rannsaka verkaskiptingu á heimilum og meta heildarvinnuframlag foreldra á vinnumarkaði og við heimilisstörf, hvernig hann skiptist milli kynja og hvernig hann er háður fjölda barna á heimilinu.

4. Helgi Tómasson: Mat á tölfræðilíkönum með vinnumarkaðskönnunum – þýðing ómældra breyta. Markmið rannsóknarinnar er að safna með rafrænum hætti gögnum um laun, vinnutíma, starf, kyn, aldur og ýmsum fleiri breytum og álykta um þýðingu þessara breyta fyrir launamyndun þar sem nauðsynlegt er að raunhæft tölfræðilegt líkan sé metið.

5. Vífill Karlsson: Staðbundið samfélagslegt mikilvægi jafnrar kynjaskiptingar. Markmið verkefnisins er að skoða samband milli kynjahalla og húsnæðisverðs – og hvort þetta samband endurspegli félagslegt mikilvægi kvenna.

16:15 Félags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, afhendir jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs 2008.

Léttar veitingar.

Nánari upplýsingar veita Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, formaður Jafnréttissjóðs, í gsm. 892 7982 eða [email protected] og Hildur Jónsdóttir, formaður Jafnréttisráðs, í gsm. 863 5383 eða [email protected].

 

Reykjavík 22. október 2008



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum