Hoppa yfir valmynd
29. desember 2008 Forsætisráðuneytið

Vákort yfir Norður-Atlantshaf stærsta formennskuverkefnið

Eitt af meginstefnumiðum Íslendinga á formennskutímanum í Norrænu ráðherranefndinni á árinu 2009 er að efla samstarf um verndun Norður-Atlantshafsins og um málefni Norðurskautsins. Liður í því er að hrinda úr vör metnaðarfullu verkefni um gerð vákorts fyrir Norður-Atlantshafið sem á að vera grundvöllur fyrir samræmdar aðgerðir, komi til umhverfisslyss. Upplýsingum um náttúrufar og viðkvæm vistkerfi, sem gætu verið í hættu, verður safnað saman í gagnagrunn með hafkortum, áhættumati og viðbragðsáætlunum á hafsvæðunum milli Noregs og Færeyja og Íslands og Grænlands. Með slíku vákorti er verið að bregðast við auknum umsvifum og siglingum í norðurhöfum, m.a. vegna aukinnar ásóknar í auðlindir á heimskautasvæðunum. Gert er ráð fyrir að vákortið verði tilbúið í lok árs 2010.

Rauður þráður í formennskuáætlun Íslendinga er að stórefla samstarf um rannsóknir og nýsköpun, ekki síst á sviði loftslags-, orku- og umhverfismála. Stefnt er að því að styrkja samstarf og verkaskiptingu Norðurskautsráðsins og ráðherranefndarinar og leitað verður eftir samstarfi við granna í vestri og suðri, þ.e. Kanada, Skotland og Írland, um nýsköpun á sviði loftslagsmála.

Efnt verður til á þriðja tug viðburða á Íslandi formennskuárinu og jafnframt munu hinar ýmsu ráðherra- og embættismannanefndir funda hér á landi.

Upplýsingar um vákort yfir Norður-Atlantshaf veitir Kristján Geirsson, deildarstjóri hjá Umhverfisstofnun, s. 591 2000.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum