Hoppa yfir valmynd
12. febrúar 2009 Forsætisráðuneytið

Umsögn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um lög um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands

Forsætisráðuneytið birtir nú umsögn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands, sem barst nú síðdegis. Umsögnin er birt í heild sinni á ensku.

Í framhaldi af óformlegri umsögn sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sendi forsætisráðuneytinu í trúnaði um síðastliðna helgi óskaði forsætisráðherra eftir því að þeim trúnaði yrði aflétt. Mjög algengt er að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn veiti aðstoð þegar kemur að samningu frumvarps um seðlabanka og sérfræðingar sjóðsins hafa mikla reynslu af því að veita slíka ráðgjöf. Í framhaldi af beiðni forsætisráðherra sendi Alþjóðagjaldeyirssjóðurinn umsögn sína sídegis í dag. Viðskiptanefnd Alþingis hefur þegar verið send umsögn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Umsögnin verður birt í íslenskri þýðingu svo fljótt sem kostur er.

Umsögn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um lög um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands á ensku (PDF skjal)

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum